Stjórnvöld í Moskvu segjast ekki hafa nokkra hugmynd um uppruna dróna sem fannst á alþjóðaflugvellinum í Leipzig á þriðjudagskvöldið. Völlurinn er mikilvæg miðstöð fyrir flutninga Þýskalandshers og Atlantshafsbandalagsins og dróninn fannst nærri flutningaflugvélum frá Úkraínu.
Þýsk lögregluyfirvöld sögðu drónann búinn sprengi- og íkveikjubúnaði og grunur leikur á tilraun til fjölþáttaárásar á Þýskaland. Þýsk yfirvöld hafa ekki nefnt Rússa berum orðum þótt innanríkisráðherrann Alexander Dobrindt segi drónann skapa nýtt hættustig fyrir landið.
Úkraínski sendiherrann í Þýskalandi segir engum öðrum til að dreifa en Rússum. Rússneska sendiráðið í Berlín segir viðbrögðin enn eina bylgju geðshræringar knúna áfram af Rússahatri.
Atburðarásinni sé lýst sem röð tilviljana sem hafi komið í veg fyrir tjón á flugvélunum sem flytji Úkraínuher evrópskan vopnabúnað. Allur málatilbúnaðurinn þjóni aðeins hagsmunum úkraínskra stjórnvalda og evrópskra stríðsæsingamanna.
Þjóðverjum stafi meiri hætta af þeim en Rússum. Drónaflug nærri flugvöllum, herstöðvum og mikilvægum innviðum víða um Evrópu hefur vakið ugg og áhyggjur. Stjórnvöld í Moskvu hafa þvertekið fyrir ásakanir um að eiga hlut að máli í nokkrum tilfellum.