Milljónir bóka hafa orðið að ösku í árásum Rússa á Úkraínu undanfarna mánuði. Prentsmiðjur, vöruhús og bókaforlög hafa orðið fyrir barðinu á árásunum og stendur úkraínsk bókaútgáfa nú frammi fyrir alvarlegustu kreppu sinni frá sjálfstæði landsins.Associated Press greinir frá því að meira en 13 milljónir bóka hafi eyðilagst á aðeins tveimur mánuðum í sumar, sem jafngildir um þriðjungi af árlegri bókaútgáfu landsins.
Rússar beina spjótum sínum að bókaútgáfu Úkraínu – Ráðast á prentsmiðjur og bókaforlög