Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið lagður inn á sjúkrahús alvarlega veikur að sögn talsmanns hans.
Ted Goodman segir ástand Giulianis stöðugt án þess að tilgreina hvað hrjái hann, hve lengi hann hafi verið veikur né hvar hann njóti umönnunar. Talsmaðurinn segir Giuliani, sem er 81 árs, munu berjast við veikindin af sama þrótti og aðrar áskoranir í lífinu.
Giuliani naut mikillar hylli Bandaríkjamanna eftir hryðjuverkaárásina á New York 11. september 2001 enda þótti honum takast vel að leiða borgarabúa gegnum áfallið sem henni fylgdi.
Hann öðlaðist frægð fyrr á ævinni þegar hann sem saksóknari af alefli beitti ákvæðum laga um fjárplógsstarfsemi til að koma helstu mafíuforingjum Bandaríkjanna bak við lás og slá.
Á síðustu árum hefur fallið hratt á ímynd Giulianis, ekki síst árið 2023 þegar hann sem lögmaður Donalds Trump var dæmdur til að greiða tveimur konum 148 milljónir bandaríkjadala í bætur.
Þær voru starfsmenn á kjörstað í Georgíuríki sem hann sakaði um kosningasvindl í forsetakosningunum 2020. Þá hefur Giuliani verið sviptur lögmannsréttindum í New York og höfuðborginni Washington.