Veðrið verður frekar rólegt og tíðindalítið í dag, fremur hægur vindur og þurrt að mestu. Sums staðar verða þó lítilsháttar skúrir.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Vestlæg eða breytileg átt 3-10 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar skúrir, en bjartviðri á Norðausturlandi.
Breytileg átt 3-8 og dálitlar skúrir á morgun. Bjart að mestu austanlands, en skýjað og allvíða rigning af og til annað kvöld.
Hiti 7 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.