Í dag verður hæg breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum, en þurrt verður norðvestantil. Síðdegis snýst í vestanátt með skúrum um landið vestanvert en annar skýjað og sums staðar dálítil væta. Hiti verður á bilinu 10 til 16 stig.
Á morgun er spáð suðvestan 5-13 m/s. Það verður rigning með köflum eða skúrir en lengst af bjart og þurrt austast á landinu. Hitinn verður á bilinu 10 til 16 stig.