Vöruskemma við Álfabakka 2A, Græna gímaldið svokallaða, hefur angrað íbúa við Árskóga í Breiðholti allt frá því ljóst varð hversu stór hún yrði.
Búseti kærði byggingarleyfi fyrir húsið tvívegis til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og óskaði eftir að leyfið yrði fellt úr gildi, framkvæmdir stöðvaðar og mannvirkið fjarlægt.
Í janúar í fyrra fól borgarstjórn innri endurskoðun og ráðgjöf að gera úttekt á skipulagsferli við Álfabakka 2A. Mat innri endurskoðunar var að annmarkar hefðu verið á stjórnsýslu og leyfisferlum í tengslum við uppbyggingu á lóðinni. Gerðar voru 12 úrbótatillögur sem borgarráð vísaði í dag til umhverfis- og skipulagssviðs.
Ræða við íbúa um að bæta nærumhverfi
Borgarráð samþykkti líka tillögur um að hefja formlegar viðræður við eigendur og leigutaka um að bæta mhverfi á uppbyggingarsvæðinu, meta áhrif uppbyggingar á umferð og taka heildstætt utan um skipulagsmál í Suður- og Norður-Mjódd og í grennd við Íþróttafélag Reykjavíkur.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir í tilkynningu að það sé löngu tímabært að bregðast við í þessu erfiða máli. Tillögunum sé ætlað að fyrirbyggja mistök sem þessi. Mjóddin sé þungamiðja verslunar, þjónustu og íþrótta í Breiðholti og mikilvægt að þarfir íbúa séu í forgrunni þegar hugað er að framtíð svæðisins.