„Ég sagði ykkur frá því fyrr í vikunni að ég væri að undirbúa mig undir annars konar gigg en ég er vön og nú er það komið í ljós“, segir söngkonan og útvarpskonan Regína Ósk Óskarsdóttir í færslu á Instagram.
„Ég og Svenni erum tvöfaldir Íslandsmeistarar í samkvæmisdönsum, ballroom og latin. Í svona elliflokk“, segir Regína Ósk og lítur á eiginmanninn, Sigursvein Þór Árnason.
Svenni neitar því: „Elliflokk, nei barasta flottasta flokknum.“
„Flokk á okkar aldri. Við erum komnar með fjóra bikara í hús. Þá er það komið út, við erum ekki búin að segja neinum frá þessu“, segir Regína Ósk.
Hjónin kepptu í sömbu, chachacha og jive í latíndönsum, og vals, tango og quick-step í ballroomdönsum.