Breski stjórnmálaflokkurinn Reform UK, sem Nigel Farage leiðir, hefur kynnt nýtt kosningaloforð sem hefur vakið vægast sagt hörð viðbrögð. Flokkurinn hyggst reisa tugi nýrra miðstöðva til að hýsa ólöglega innflytjendur og hælisleitendur.
Það sem er að gera allt vitlaust er að flokkurinn hefur tilkynnt að þær verði allar staðsettar í kjördæmum þar sem kjósendur hafa stutt Græningja, sem er talinn vera helsti samkeppnisflokkur Reform og sá flokkur sem helst styður við áframhaldandi innflytjendastefnu í Bretlandi.
Tillagan er hluti af stefnu flokksins um að herða innflytjendastefnu landsins verulega. Samkvæmt áætluninni yrðu stöðvarnar notaðar til að hýsa fólk sem á að vísa úr landi, á meðan það bíður brottflutnings.
Stefna á að vísa allt að milljón manns úr landi
Reform UK hefur lýst því yfir að markmiðið sé að vísa allt að einni milljón erlendra ríkisborgara úr landi á næstu fimm árum nái flokkurinn völdum. Fólki sem verður valið til brottvísunar yrði boðið flugfar heim og um 1.000 pund í fjárhagsaðstoð til að hefja nýtt líf í heimalandi sínu.
Þeir sem hafna slíku tilboði yrðu settir í varðhald þar til brottvísun fer fram. Til að framkvæma þessa stefnu telur flokkurinn nauðsynlegt að geta haft allt að 24.000 manns í varðhaldi, sem ermun meira en nú er hægt í Bretlandi og því yrði að byggja miðstöðvar þar sem erlendir ríkisborgarar munu dvelja.
Allir fá það sem þeir kusu“
Zia Yusuf, einn af frambjóðendum flokksins, segir það sanngjarnt að slíkar miðstöðvar verði staðsettar á svæðum þar sem kjósendur hafi stutt stefnu um opnari landamæri. Hann bætti við að engar slíkar stöðvar yrðu reistar í kjördæmum þar sem Reform UK er með þingmenn eða stjórna sveitarfélögum.
Það er óhætt að segja að þetta loforð flokksins hafi gert allt vitlaust í Bretlandi og andstæðingar Reform hafa sagt að þetta séu einskonar pólitískar refsiaðgerðir gegn andsæðingum flokksins sem ætlað er að fæla fólk frá því að kjósa Græningja.
Talsmenn flokksins hafa svarað því að þetta sé í raun réttlátasta lausn sem hægt er að hugsa sér í þessum málum, enda fái allir það sem þeir kusu: kjósendur Reform losni við hælisleitendur og flóttamenn úr sínum kjördæmum en kjósendur Græningja fái þá til sín.
Einnig hefur flokkurinn boðað að hann vilji segja Bretland úr Mannréttindasáttmála Evrópu til að flýta fyrir brottvísunum.
Today we announce a new policy:
In order to deport all illegal migrants in Britain, Reform will need to detain tens of thousands at a time.
Migrants will not be able to leave these detention centres, and each will be held there a couple of weeks before being deported.
So…
— Zia Yusuf (@ZiaYusufUK) May 3, 2026