Fimm vændiskaupendur voru handteknir í lögregluaðgerð í Reykjavík í vikunni 8. til 12. júní. Afskipti voru höfð af sextán vændiskonum, sem taldar eru hafa verið gerðar út af kínverskum glæpasamtökum. Allt var þetta hluti af samræmdum aðgerðum í 59 löndum víðs vegar um heim.
Evrópulögreglan Europol sendi frá sér tilkynningu um málið nú klukkan 12. Þar kemur fram að aðgerðirnar hafi gengið undir heitinu Global Chain, eða Heimskeðjan, og hafi verið stýrt frá tveimur miðstöðvum, annarri í Skopje í Makedóníu og hinni í Rio de Janeiro í Brasilíu. Aðgerðunum var sérstaklega beint að mansali – ekki síst vændismansali, en líka mansali þar sem fólk er neytt til að stunda glæpi og betla.
Í aðgerðunum hafi 1.024 verið handteknir, þar af 334 grunaðir um mansal, og að ætlaðir þolendur í málunum séu 2.070, langflestir konur. Af fórnarlömbunum hafi 162 verið undir aldri. Þá hafi lögreglan í framhaldinu fundið yfir 200 manns til viðbótar sem grunaðir eru um mansal. Yfir 40 þúsund manns frá lögreglu, tollgæslu og landamæraeftirliti í löndunum 59 eru sagðir hafa tekið þátt í aðgerðunum. Þolendurnir eru sagðir frá 45 löndum.
Yfir 50 vændiskaupendur náðust á myndavél
Sérstakir kaflar eru í tilkynningunni um aðgerðir í tíu af löndunum 59. Einn þeirra er um Ísland. Þar kemur fram að lögregla hafi haft eftirlit með tveimur stöðum þar sem talið var að vændi væri stundað á vegum kínverskra glæpasamtaka. Yfir 50 vændiskaupendur hafi náðst á eftirlitsmyndavélar og af þeim hafi fimm verið handteknir.
Fram kemur að lagt hafi verið hald á um 14 þúsund evrur, jafnvirði um tveggja milljóna íslenskra króna, þrettán farsíma og ellefu skilríki. Enn sé verið að taka skýrslur af vitnum til að safna sönnunargögnum gegn glæpasamtökunum. Sextán ætlaðir þolendur vændismansals hafi fundist og þeim boðin viðeigandi aðstoð. Af þeim hafi tveir verið handteknir fyrir ólöglega dvöl á Íslandi.