Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út í Bretlandi, meðal annars fyrir höfuðborgina London, vegna hitabylgju. Veðurstofur víða um vesturhluta Evrópu hafa gefið út viðvaranir. Hiti fer víða yfir 40 stig í dag og bylgjan verður viðvarandi næstu daga.
Í Frakklandi nær hæsta hitaviðvörunin til 35 milljóna manna sem hvattir eru til að sýna árvekni, drekka nóg vatn, forðast erfiða áreynslu og beint sólarljós. Yfirvöld í Gironde-héraði í suðvestur Frakklandi segja þrettán dauðsföll megi rekja til hitabylgjunnar. Þar af hafi þrír aldraðir látist úr hitanum, en tíu mann drukknað.
Spár gera ráð fyrir allt að 43 stiga hita í Bordeaux, sem er í Gironde, og 39 stigum í París. Skólahaldi var aflýst í 800 skólum í dag og aðrir 1.800 senda nemendur snemma heim.
Hitabylgjan gengur einnig yfir Spán þar sem hiti gæti náð 44 stigum. Í höfuðborginni Madríd var sýningu leiks Spánar og Sádi-Arabíu á HM á risaskjá í miðborginni aflýst vegna hita.
Breska veðurstofan hefur gefið út rauða veðurviðvörun vegna hita í Englandi og Wales á miðvikudag og fimmtudag. Þar gæti hiti náð allt að 39 stigum. Viðvörunin nær til suðvesturhluta Englands, höfuðborgarinnar London meðal annars, miðhéraða Englands og suðurhluta Wales. Appelsínugul viðvörun vegna hita nær yfir enn stærra svæði, allt upp til Manchester.