Lundúnalögreglan rannsakar hnífstunguárás, þar sem tveir menn voru stungnir á götu úti í Golders Green í norðurhluta Lundúna, sem hryðjuverk. Mennirnir, sem eru 76 og 34 ára gamlir, eru gyðingar. Þeir voru fluttur á sjúkrahús og eru í stöðugu ástandi.
Árásarmaðurinn, sem er 45 ára, var yfirbugaður og handtekinn á vettvangi. Hann er grunaður um tilraun til manndráps. Lögregla segir manninn einnig hafa reynt að stinga lögreglumenn sem handtóku hann en þeir hafi sloppið ómeiddir.
Maðurinn hefur áður beitt alvarlegu ofbeldi og átt við geðræn vandamál að stríða, að sögn lögreglustjóra Lundúnalögreglunnar. Lögreglan segist vera að rannsaka hvort árásin hafi verið ætluð sérstaklega gegn gyðingum í borginni.
Hópurinn Harakat Ashab al-Yamin al-Islamia, sem er með tengsl við Íran, segist bera ábyrgð á árásinni og hryðjuverkadeild lögreglunnar rannsakar hvort það eigi við rök að styðjast. Hópurinn hefur lýst yfir fjölda árása sem beint hefur verið gegn samfélögum gyðinga í Evrópu síðan í mars.
Ofbeldi gegn gyðingum hefur stigmagnast í Bretlandi undanfarinn áratug. Samkvæmt tölfræði frá samtökunum Community Security Trust, sem fylgjast með ofbeldi gegn gyðingum í Bretlandi, voru rúmlega fjögur þúsund atvik skráð 2023. Það eru ofbeldisverk, skemmdarverk, hótanir og önnur ofbeldisfull hegðun.