Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur rofið þögnina um brotthvarf Guðmundar Inga Kristinsson úr ráðherrastóli í janúar. Guðmundur Ingi birti nýverið skilaboð frá aðstoðarmanni sínum, Guðbjörgu Ingunni Magnúsdóttur, sem er eiginkona Ragnars Þórs, sem margir hafa túlkað sem hótun um að farið verði í stríð við Guðmund nema hann hætti sem ráðherra. Fjölmiðlar hafa reynt síðustu daga að ná í Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, og Ragnar Þór.
Ragnar Þór rýfur þögnina: „Ég las annað út úr þessum skilaboðum en einhverjar hótanir“