Margir hafa orðið rafmagnsleysisins varir ef marka má hverfishópa en á vef Veitna segir að unnið sé að því að koma rafmagninu aftur á. Fólk megi fylgjast grannt með vefnum en þar muni uppfærslur á stöðunni detta inn eftir því sem fram vindur.
Þar er einnig beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem rafmagnsleysið kunni að valda.