Fulltrúar Bandaríkjanna og Íran eru væntanlegir til Doha í vikunni vegna áframhaldandi viðræðna í tengslum við friðarsamkomulagið sem náðist í gær. Þetta gerist áður en samkomulagið verður undirritað á föstudag.
AFP-fréttastofan hefur eftir embættismanni að undirbúningsviðræður verði haldnar í Doha. Undirritunin sjálf fer fram í Sviss. Í undirbúningsviðræðunum á að ræða tæknileg úrlausnaratriði.
Heimildarmaðurinn sagði AFP-fréttastofunni að milligöngumenn frá Katar hefðu rætt við Írana í sautján klukkustundir og átt við þá ákafar viðræður áður en samkomulag náðist.
Samkomulaginu hefur verið fagnað víða um heim. Í morgun lýstu til dæmis Sádí-Arabar, Kínverjar og Evrópusambandið yfir ánægju sinni með að binda ætti enda á stríðið við Persaflóa.
Ekki voru þó allir ánægðir. Itamar Ben Gvir, varnarmálaráðherra Ísraels, fordæmdi samkomulagið og sagði að Ísraelar væru ekki bundnir af því. Hann sagði að Ísraelar væru ekki aðilar að því og að það tryggði ekki öryggi Ísraels. Hann sagði að Ísraelar myndu ekki gefa eftir þumlung af landsvæði sem Ísraelar hefðu náð á sitt vald í Líbanon.
Hlutabréfaverð hækkaði og eldsneytisverð lækkaði eftir að tilkynnt var að samkomulag hefði náðst.