Leiðtogi Jafnaðarmanna í Danmörku, Mette Frederiksen, er ein þeirra sem hafa fengið boð frá Troels Lund Poulsen, leiðtoga Venstre, um að mæta á fund vegna stjórnarmyndunarviðræðna í dag.
Poulsen fékk stjórnarmyndunarumboð á mánudag eftir að ekki hafði gengið hjá Frederiksen að mynda stjórn. Í kosningabaráttunni hafði hann gagnrýnt efnahagsstefnu Jafnaðarmanna en virðist nú hafa breytt afstöðu sinni.