Pétur G. Markan hefur verið ráðinn bæjarstjóri Grindavíkur. Hann var einn 23 umsækjenda en við valið var lögð áhersla á leiðtogahæfni, farsæla stjórnunarreynslu, þekkingu á opinberri stjórnsýslu og getu til að leiða endurreisn og uppbyggingu Grindavíkur, að því er segir í tilkynningu frá bæjarstjórn Grindavíkur.
Pétur starfaði síðast sem bæjarstjóri í Hveragerði. Þar áður var hann biskupsritari og stýrði samskiptum þjóðkirkjunnar. Hann var sveitarstjóri Súðavíkurhrepps í fimm ár og hefur gegnt fjölmörgum stjórnunar- og trúnaðarstörfum fyrir sveitarfélög og opinbera aðila.
„Það er mér mikill heiður að taka að mér að vera bæjarstjóri Grindvíkinga, nær og fjær. Fram undan er söguleg uppbygging og kraftmikil endurreisn einstaks samfélags sem býr að miklum gæðum, með öryggi, framsýni og hugrekki að leiðarljósi. Markmiðið er tvíþætt, að tryggja markvissa uppbyggingu Grindavíkur og vinna Grindavík til baka og meira til. Ég kem til starfa með metnað til að vinna að hagsmunum Grindvíkinga og tala þeirra máli,“ er haft eftir Pétri í tilkynningu frá bænum.
„Við erum afar ánægð með að fá Pétur til starfa í Grindavík. Framundan eru stór og mikilvæg verkefni við áframhaldandi endurreisn samfélagsins og við teljum að reynsla hans, þekking og leiðtogahæfni muni nýtast sveitarfélaginu afar vel. Við hlökkum til samstarfsins á þessum mikilvægu tímamótum,“ er haft eftir Ásrúnu Helgu Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar Grindavíkur, í tilkynningu.