Samtök skipstjórans og umhverfisverndarsinnans Paul Watson hyggjast snúa aftur til Íslands í sumar til að mótmæla hvalveiðum Kristjáns Loftssonar og fyrirtækis hans, Hvals hf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum, Captain Paul Watson Foundation.
Aðgerðin hefur fengið heitið „Operation 86“, eða Aðgerð 86. Ljóst er að þar er vísað í aðgerðir Watsons og og hans meðreiðarsveina árið 1986 þegar skipunum Hval 6 og 7 var sökkt við höfnina í Reykjavík en það var sama ár og Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti bann við hvalveiðum í atvinnuskyni.
Í tilkynningunni er aðgerðin sögð marka nýjan kafla í áratugalangri baráttu milli hvalveiðimanna og andstæðinga hvalveiða. Þar kemur einnig fram að skipi samtakanna, Bandero, verði siglt til Íslands.
Ætla að ljúka því sem hófst 1986
Samtökin benda á að hvalveiðikvótinn í ár sé 150 langreyðar fyrir veiðitímabilið 2026, sem er 28% samdráttur frá fyrra ári. Er jafnframt vísað til greinar Morgunblaðsins þar sem Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., sagði verð á útfluttu hvalkjöti hafa lækkað á undanförnum árum.
Paul Watson segir að nú líði að lokum þeirrar baráttu sem samtökin hafa háð síðan 1986. „Það sem við hófum árið 1986 ætlum við að ljúka árið 2026,“ er haft eftir honum.
Þá er haft eftir Robert Read hjá samtökunum í Bretlandi að deilan „snúist ekki um vísindi, sjálfbærni eða hefðir heldur atvinnugrein sem neiti að viðurkenna að hennar tími sé liðinn“.
Samtökin segjast hafa fylgst með öllum lönduðum langreyðum á Íslandi frá árinu 2018 og með því varpað ljósi á þjáningar hvalanna og þrýst á breytingar á regluverki. Þrátt fyrir það hafi veiðarnar ekki stöðvast og því sé kominn tími til að binda enda á íslenskar hvalveiðar fyrir fullt og allt.
