Le Pen var dæmd í þriggja ára fangelsi og til þess að greiða 100.000 evrur í sekt fyrir sinn þátt í misferli með fjármuni Evrópuþingsins. Hún verður í stofufangelsi með ökklaband í eitt ár en tvö ár af fangelsisdómnum eru skilorðsbundin.
Stóra málið var hins vegar hvort dómstóllinn sneri við banni við því að hún byði sig fram til opinbers embættis í fimm ár sem neðri dómstóll kvað á um í fyrra. Hefði bannið staðið óhaggað gæti Le Pen ekki boðið sig fram til forseta á næsta ári.
Niðurstaðan er nokkuð tvíræð. Áfrýjunardómstóllinn stytti bannið í tæplega fjögur ár og skilorðsbatt þrjátíu mánuði af því. Samkvæmt því er Le Pen ekki óheimilt að bjóða sig fram í forsetakosningum á næsta ári.
Le Pen hafði hins vegar áður sagt að hún ætlaði ekki í forsetaframboð með ökklaband. Ekki er reiknað með því að Le Pen eða Þjóðfylking hennar tjái sig um dóminn fyrr en í sjónvarpsviðtali í kvöld.
Á þriðja tug liðsmanna Þjóðfylkingarinnar voru dæmdir í málinu sem snerist um greiðslur sem flokkurinn fékk til þess að fjármagna starfsemi sína á Evrópuþinginu. Í staðinn notaði flokkurinn féð ólöglega til þess að reka starfsemi sína í Frakklandi.