Hækkandi olíuverð vegna stríðsins í Miðausturlöndum hefur víðast hvar leitt til aukinnar verðbólgu. Það þekkjum við Íslendingar mætavel.
En þannig er þetta ekki í Danmörku samkvæmt nýrri mælingu hagstofunnar þar, sem var birt í morgun og gildir fyrir júlímánuð. Í júní var ársverðbólgan 1,9% en mánuði síðar hafði hún minnkað í 1,7%.
Það sem vegur þar þungt er lækkun matarverðs, sem hefur verið býsna skörp í sumar. Árshækkun matarverðs var 2,7% í apríl, en í júlí mældist lækkun upp á 1,6%.
Þola sveiflur á olíuverði
Tore Stramer hagfræðingur Dansk Erhverv, sem eru systursamtök Samtaka atvinnulífsins, segir þessa mælingu koma á óvart en hún sýni að verðþrýstingur í Danmörku er ekki stjórnlaus.
„Þetta er fjöður í hatt dansks efnahagslífs, sérstaklega þar sem aukin áhersla á grænar lausnir þýðir að við þolum frekar sveiflur í olíuverði,“ segir hann í greiningu sem hann hefur sent frá sér.
Annar greinandi bendir á að mjólkurvörur, eins og smjör, mjólk og ostur, hafi lækkað um 10% og kjöt og sykur hafi einnig lækkað. Sá þriðji bendir á að iðnaðarfyrirtæki í Danmörku séu að nýta orkuna sífellt betur og séu þar með ekki eins viðkvæm fyrir hækkandi verði á orku.
Danskir hagfræðingar vara þó við of mikilli bjartsýni. Líklegt sé að verðbólgan eigi eftir að aukast aftur vegna áhrifa stríðsins í Íran á komandi mánuðum.