Orrustuþotur skutu niður dróna í norðausturhluta Lettlands í nótt. Lettneska ríkisútvarpið greinir frá. Appelsínugul viðvörun var send út með smáskilaboðum til íbúa um klukkan fjögur að staðartíma í fimm héruðum í austurhluta Lettlands þegar drónans varð vart.
Orrustuþotur sem sjá um loftrýmisgæslu í Lettlandi á vegum Atlantshafsbandalagsins skutu drónann niður í Balvi-héraði og var viðvörun aflétt um klukkustund síðar.
Loftrýmisgæslunni, Baltic Air Policing, er sinnt af flugherjum nokkurra NATO-þjóða sem skiptast á að sinna gæslunni til fjögurra mánaða í senn. Tyrkland sinnir um þessar mundir loftrýmisgæslu í Eistlandi og Ítalar sjá um loftrýmisgæslu í Litáen.
Ekki liggur fyrir hvaðan dróninn kom eða hver ber ábyrgð á honum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem drónar rjúfa loftrými Lettlands. Orrustuþotur franska flughersins sem þá voru við loftrýmisgæslu skutu niður dróna í fyrsta sinn 8. júní, einnig í austurhluta Lettlands.
Aðfaranótt 7. maí hröpuðu tveir drónar niður sömuleiðis í austurhluta landsins og sá þriðji hrapaði og sprakk við stöðuvatn. 25. mars hrapaði úkraínskur dróni í Krāslava-héraði sem er í suðausturhluta Lettlands.