Le Pen og fleiri leiðtogar Þjóðfylkingar hennar voru dæmdir sekir fyrir fjármálamisferli í fyrra. Þeir notuðu styrki frá Evrópuþinginu sem áttu að renna til Evrópuþingflokksins til þess að fjármagna starf sitt í Frakklandi um margra ára skeið.
Með dómnum var Le Pen bannað að bjóða sig fram til opinbers embættis í fimm ár. Hnekki áfrýjunardómstóllinn ekki dómnum í dag verður Le Pen ekki gjaldgeng í forsetakosningum þar sem Þjóðfylkingin eygir raunverulegan möguleika á sigri.
Búist er við að dómsuppsaga hefjist klukkan 11:30 að íslenskum tíma. Hún gæti þó tekið nokkrar klukkustundir þar sem sakborningar eru margir. Ekki er gert ráð fyrir að Le Pen tjái sig um niðurstöðuna fyrr en í sjónvarpsviðtali í kvöld.
Verði dómurinn yfir Le Pen staðfestur er gert ráð fyrir að Jordan Bardella verði forsetaframbjóðandi Þjóðfylkingarinnar á næsta ári.