Nú berast fregnir af því að Þorsteinn Már Baldvinsson, stofnandi Samherja, ætli að borga úr eigin vasa 25 milljónir króna fyrir rekstur á úthringiveri í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þá verður hópur fólks við störf við úthringingar til kjósenda þar sem haldið verður uppi skefjalausum áróðri gegn því að kjósa JÁ en þess í stað dreift neikvæðum hræðsluáróðri til að reyna að koma í veg fyrir að þjóðin fái að ráða og fái svör við þeim kostum sem gætu verið í boði gagnvart Evrópusambandinu.
Orðið á götunni: Þorsteinn Már ætlar að borga 25 milljónir króna fyrir úthringiver í ágúst