Viktor Orban, fyrrverandi forsætisráðherra Ungverjalands, var endurkjörinn formaður flokks síns, Fidesz, í dag, um tveimur mánuðum eftir stórtap í þingkosningum sem bundu enda á 16 ára valdatíð hans.
Orban, sem er 62 ára, hefur um árabil verið einn af merkisberum evrópskra harðlínuflokka af hægri vængnum.
Samkvæmt frétt Reuters hafði myndast þrýstingur innan raða Fidesz um að hann ætti að þekkja sinn vitjunartíma, það varð þó lítið úr slíkum hugmyndum á flokksþingi í dag, þar sem 729 af 737 fundarmönnum greiddu Orban atkvæði sitt.
Eftir að úrslitin lágu fyrir var Orban býsna vígreifur og sagði að flokkurinn þyrfti að ná vopnum sínum til að verða tilbúinn til að taka stjórn á ný.
Í kosningunum í apríl vann Tisza-flokkur Peters Magyars afgerandi sigur og hefur síðan verið að vinda ofan af stefnumálum Orbans.
Meðal annars hefur nýja stjórnin samið við Evrópusambandið um að fá styrki og lán sem hafði verið haldið eftir vegna spillingamála tengdum Orban.
Fylgi Fidesz hefur hrunið frá kosningunum. Þá hlaut flokkurinn 39% atkvæða en mælist nú með 17% fylgi.