Landhelgisgæslan hefur tekið ómannað loftfar, eða flugdróna, í sína þjónustu og verður það notað til að efla eftirlit á íslensku hafsvæði á næstu mánuðum, að því er segir í tilkynningu. Mikilvægustu hlutverk drónans verða á sviði löggæslu, leitar og mengunareftirlits.
Dróninn, sem er af gerðinni Tekever AR5, verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli þar til í lok september. Verkefnið er unnið í samstarfi Landhelgisgæslunnar við Samgöngustofu, Isavia, Avians, ECOI og tollasvið Skattsins.
Fjármagn í verkefnið er fengið frá Evrópusambandinu og skipulagt í samstarfi við Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA.