Sérfræðingur í hrávörumörkuðum segir bjartsýni á olíumarkaði eftir undirritun viljayfirlýsingar Bandaríkjanna og Írans. Samkomulagið sé þó brothætt og erfitt að meta framtíðarhorfur.
Olíumarkaðir tóku við sér þegar útlit varð fyrir að Bandaríkjamenn og Íranar gætu komist að samkomulagi um lok stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.
Markaðir lækkuðu hratt og eru um 40% lægri en þegar hæst var.
Brynjólfur Stefánsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Íslandssjóðum, segir að búast megi við að olíuverð á Íslandi fylgi verðþróun á heimsvísu að einhverju leyti.
„Við sjáum kannski ekki alveg jafnmikil áhrif hérna heima bara út af því að það eru allskonar gjöld og slíkt sem koma inn í bensínverð hér og auðvitað erum við alltaf að versla olíuvörur en ekki hráolíu, en það má alveg búast við því að olíu- og bensínverð lækki líka á Íslandi í kjölfarið á þessum samningum ef þeir ganga eftir,“ segir Brynjólfur.
Þrátt fyrir að horfur séu jákvæðar segir Brynjólfur að enn geti brugðið til beggja vona. Markaðurinn verðlauni vonir um að friður náist en viljayfirlýsingin sé ekki varanleg lausn.
„Markaðurinn er svolítið að verðlauna þessa von um það að friður náist og þetta er bráðabirgðasamkomulag með sextíu daga gildistíma. Þetta er ekki alveg varanleg lausn þannig að olíuverð gæti hæglega leitað aftur upp á við ef samningurinn brotnar,“ segir Brynjólfur.
„En ef menn ná vel saman og þetta rammasamkomulag verður grundvöllur varanlegs samnings þá má alveg búast við því að olíuverð haldist kannski á svipuðum stað og það er núna eitthvað áfram, þótt að rykið eigi nú eftir að setjast líka.“