Ólafur Egill Egilsson er 49 ára fjölskyldumaður og þjóðþekktur einstaklingur fyrir störf sín í kvikmyndageiranum og innan leikhúsanna. Hann er nýjasti gestur hlaðvarpsins Sterk saman.
Ólafur er aðstandandi einstaklings með vímuefnavanda og talar um muninn á því að eiga að einstakling með slíkan sjúkdóm og annan með meira samþykktan sjúkdóm innan samfélagsins sem mætir ekki þeim fordómum.
Ólafur ólst upp í Reykjavík hjá þekktum foreldrum ásamt systkinum sínum. Hann og bróðir hans voru nánir enda stutt á milli þeirra í aldri.
„Ég er rótgróinn í hverfinu mínu og á ennþá marga vini síðan ég var barn. Ég hef til dæmis þekkt konuna mína síðan ég var krakki líka.“
Ólafur hefur sínar skoðanir á vímuefnalöggjöfinni og refsistefnunni.
„Mín skoðun er sú að það þurfi að lögleiða þetta og skattar af því ættu að fara í ríkiskassann. Kannski ekki vinsæl skoðun en það er hvort sem er allt flæðandi í efnum og ef þú vilt fá efni þá færðu þau. Mér finnst þá eðlilegra að selja þau í apóteki þar sem fólk þyrfti að sýna skilríki og efnin væru hrein og ekki blönduð með einhverju eitri.“
Fyrst þegar Ólafur áttaði sig á því að hann væri aðstandandi einstaklings með vímuefnavanda áttaði hann sig á sínum fordómum.
„Ég hugsaði til að byrja með að minn aðstandandi ætti bara að hætta þessu og stoppa en ég áttaði mig á að þetta væri ekki svona einfalt eftir að ég leitaði mér aðstoðar. Til að byrja með ætlaði ég að leita mér aðstoðar til að hjálpa mínum einstakling en áttaði mig svo á að ég þurfi hjálp við að skilja þessi veikindi og þetta væri miklu flóknara en ég hélt.“
Ólafur áttaði sig á að vímuefnavandi væri flókinn vandi sem ætti djúpar rætur og væri oftar afleiðing en ekki.
„Það þarf að setja peninga inn í kerfið til að aðstoða jaðarsetta einstaklinga og samfélagið allt þarf að vakna og hætta að gera þessa einstaklinga jaðarsetta.“