Maður sem keyrði inn í hóp af fólki í miðborg Leipzig í Þýskalandi í gær hafði fyrir atvikið verið vistaður á lokaðri geðdeild. Kona á sjötugsaldri og maður á áttræðisaldri létust og fjöldi til viðbótar særðist.
Ökumaðurinn, 33 ára karlmaður, var handtekinn á vettvangi í gær. Staðarmiðillinn Leipziger Volkszeitung greinir frá að hann heiti Jeffrey K. Hann er sagður glíma við andleg veikindi og var áður vistaður á lokaðri geðdeild í Norður-Saxlandi.
Rannsókn málsins stendur enn, hluti miðborgarinnar er áfram lokaður og lögregla greinir nú myndir og myndskeið frá vettvangi.
Í morgun var haldin minningarathöfn um þau sem létust, 63 ára kona og 77 ára karlmaður. Að minnsta kosti þrjú særðust alvarlega og fjöldi til viðbótar særðist minna.
Alex Schuh, slökkviliðsstjóri í Leipzig, segir allt viðbragð hafa verið til fyrirmyndar. „Strax var hugað að særðu fólki, bæði þau sem áttu leið hjá og vandamenn þeirra særðu. Á meðal þeirra var heilbrigðismenntað fólk.“
Sorgin er áþreifanleg í borginni og fólk bæði í áfalli og hrætt. „Leipzig var okkar örugga skjól - en nú er það horfið,“ segir kona sem ólst upp í borginni.