Ökumaður er grunaður um ýmis umferðarlagabrot sem lögregla telur að hafi valdið umferðaróhappi í miðborg Reykjavíkur seint í gærkvöld. Rannsókn stendur yfir á tildrögum óhappsins.
Enginn slasaðist en ökutæki og ljósastaur skemmdust að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Minni háttar líkamsárás er til rannsóknar í því umdæmi lögreglunnar sem sinnir Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins réði á þriðja tímanum í nótt niðurlögum elds á gámasvæði í Hafnarfirði, þar sem enginn var í hættu. Að öðru leyti fjallar skeyti lögreglunnar um afskipti hennar af ökumönnum sem frömdu umferðarlagabrot af ýmsu tagi í margvíslegu ástandi.
Engan sakaði í minni háttar umferðaróhappi í úthverfi. Nokkrir voru stöðvaðir fyrir hraðakstur og sá sem hraðast fór var á 128 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80. Enginn gisti fangaklefa lögreglunnar í morgun.