Oddur Thorarensen Stefánsson segir að hann hafi í áraraðir þurft að berjast fyrir þeim stuðningi sem hann telur sig eiga rétt á. Hefur hann tekið upp á því að hljóðrita samtöl við stofnanir sem hann á í samskiptum við.„Ég er fatlaður einstaklingur og hef í mörg ár þurft að berjast fyrir þeim stuðningi sem mér finnst ég eiga rétt á samkvæmt lögum og þeim markmiðum sem íslenskt samfélag hefur sett sér um jafnrétti og sjálfstætt líf,“ segir hann í grein í Morgunblaðinu í dag.
Oddur er farinn að hljóðrita samtöl sín við stofnanir: „Kerfið er því miður rotið að utan en einnig að innan“