Landspítali hefur fest kaup á nýjum aðgerðaþjaka sem verður nýttur til fjölbreyttra aðgerða á sjúkrahúsinu. Landspítali stóð fyrir móttöku í Hringsal á dögunum til að þakka styrktaraðilum sem lögðu hönd á plóginn og gerðu spítalanum kleift að kaupa aðgerðarþjarkann. Nýi aðgerðaþjarkinn verður nýttur í aðgerðir á kvenlíffærum, kviðarholi og þvagvegum svo dæmi séu tekin. Fastus Heilsa sá um innflutning á aðgerðarþjarkanum til landsins.„Þetta er gríðarlega mikilvægt tæki og stökkbreyting fyrir okkur að geta haldið áfram á þeirri vegferð sem við erum á.
Nýr aðgerðaþjarki afhentur á Landspítala