Ný þota Trumps — gjöf frá Katar — verður senn tilbúin

Ný þota Trumps — gjöf frá Katar — verður senn tilbúin

Boeing 747 risaþotan sem stjórnvöld í Katar gáfu Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir tæpu ári hefur staðist tilraunaflug og verður tilbúin til notkunar í sumar.

Bandaríski flugherinn greinir frá og segir verið að mála hana í nýjum opinberum litum forsetaembættisins, rauðum, hvítum og bláum. Þegar greint var frá gjöfinni, sem er hundraða milljóna dala virði, var bent á að þingið þyrfti að samþykkja allar gjafir frá erlendum ríkjum.

Þotan er sögð innréttuð eins og höll og það að erlent ríki láti hana í té hefur kveikt siðferðilegar og lagalegar spurningar ásamt efasemdum um að öryggissjónarmið hafi verið látin ráða för þegar gjöfin var þegin.

#frá #gjöf #katar #trumps #þota


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-05-02-ny-thota-trumps-gjof-fra-katar-verdur-senn-tilbuin-474118

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260