Kim Jong-un leiðtogi Norður-Kóreu segir að herskip norðurkóreska sjóhersins verði búin kjarnorkuvopnum. Þetta sagði Kim í ræðu sem hann hélt við sjósetningu nýs 5.000 tonna herskips. Þar sagði hann stjórnvöld stefna að því að smíða tvöfalt stærri herskip.
„Áætlun okkar um að búa sjóherinn kjarnorkuvopnum heldur áfram án vandræða,“ sagði Kim í ræðu sinni í gær. Hann sagði fyrirætlanirnar mikilvægar til þess að gera herinn reiðubúinn til að grípa til fjölhæfra og markvissra aðgerða.
Á þriggja daga allsherjarfundi norðurkóreska verkamannaflokksins sem lauk á mánudag hét Kim því að efla varnarviðbragð hersins. AFP-fréttaveitan segir Kim hafa vísað í hernaðaruppbyggingu Suður-Kóreu og Bandaríkjanna sem hafi ýtt heimshlutanum á brún kjarnorkustyrjaldar.
Stjórnvöld í Pjongjang hafa frá 2019 ítrekað lýst því yfir að ekkert fái stöðu ríkisins sem kjarnorkuveldis breytt. Viðræður um afkjarnorkuvæðingu Norður-Kóreu bundu snöggan endi á leiðtogafund Kims og Donalds Trumps í Hanoi í Víetnam það ár.