Níu voru drepnir og fjórtán særðust í drónaárás RSF-uppreisnarhersins á þorp í Norður-Kordofan í Súdan í gærmorgun. RSF-uppreisnarherinn er að reyna að umkringja borgina El-Obeid og Sameinuðu þjóðirnar óttast að gerð verði mikil árás á borgina.
Uppreisnarherinn hefur reynt að ná tökum á Norður-Kordofan-héraði í nokkra mánuði. Yfir eitt þúsund almennir borgarar hafa verið drepnir í drónaárásum í héraðinu á þessu ári í átökum á milli uppreisnarhersins og súdanska hersins.
Bæði súdanski herinn og RSF uppreisnarherinn hafa verið sakaðir um grimmdarverk í stríðsátökunum í Súdan sem hafa staðið yfir síðan í apríl 2023. Talið er að yfir 200.000 hafi verið drepin í átökunum.
Tugmilljónir hafa þurft að flýja heimili sín og þurfa á mataraðstoð að halda, kynferðisofbeldi og pyntingum er beitt með skipulögðum hætti og ástandinu í landinu hefur verið lýst sem verstu mannúðarkrísu heims um þessar mundir.
RSF uppreisnarherinn hefur framið mikil ódæðisverk í Darfur-héraði og Sameinuðu þjóðirnar segja þau bera einkenni þjóðarmorðs.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ítrekað kallað eftir því að öllum árásum verði hætt tafarlaust, að aðgengi að mannúðaraðstoð verði tryggt og vernd borgara og innviða sett í forgang.