Páll Vilhjálmsson skrifar:
Mögulegur samningur Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra um ESB-aðild Íslands er háður neitunarvaldi Kristrúnar forsætisráðherra. Kristrún las upp yfirlýsingu þess efnis á fundi utanríkismálanefndar alþingis.
Í yfirlýsingunni kveðst Kristrún ætla að efna loforð, sem hún gaf Þorgerði Katrínu við stjórnarmyndun, og segja já í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-umsókn. En Kristrún áskilur sér rétt til að hafna að samningi sem Þorgerður Katrín hyggst gera við ESB. Orðrétt er yfirlýsing forsætisráðherra svohljóðandi:
Ég mun segja já í ágúst, en ég vil líka fá góðan samning. Og ég mun aldrei leggja til samning inn í síðari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég hef ekki trú á að treysti fullveldi okkar, sjálfstæði og efnahagslega hagsmuni til lengri tíma.
Með yfirlýsingu Kristrúnar verður fullkomlega óljóst hvaða þýðingu boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst hefur. Fram að yfirlýsingu forsætisráðherra var tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla stefna ríkisstjórnarinnar og var kynnt á blaðamannafundi í beinni útsendingu 6. mars.
Þorgerður Katrín utanríkisráherra hefur, í umboði ríkisstjórnarinnar, sagt að þjóðin verði spurð tvisvar. Fyrst hvort semja eigi við ESB en síðan verði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um samninginn.
Með yfirlýsingu sinni á fundi utanríkismálanefndar í fyrradag breytir Kristrún fyrri stefnu ríkisstjórnarinnar. Óvíst er hvort seinni atkvæðagreiðslan verði haldin.
Með neitunarvaldi Kristrúnar er þingsályktunartillaga Þorgerðar Katrínar, um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu, ótæk til frekari meðferðar á alþingi. Tillöguna verður að afturkalla og semja nýja. Það þýðir að ekki er hægt að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst. Tíminn er of naumur. Samkvæmt lögum verða þrír mánuðir hið minnsta að líða frá samþykkt alþingis þangað til þjóðaratkvæðagreiðsla er haldin.
Takk, Kristrún.