Þrír af hverjum fjórum eiga erfiðleikum með að verða sér úti um vinnu, mat og heilbrigðisþjónustu í Afganistan. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum og aldrei hafa fleiri Afganar verið á barmi hungursneyðar eða um 4,7 milljónir.
Ástandið er einna verst í Ghor-héraði, þangað komst fréttateymi BBC þrátt fyrir að það sé ekki auðvelt fyrir fjölmiðlafólk að komast inn í landið.
BBC ræddi við fjölda fólks sem lýsir því að börn þeirra fari svöng í háttinn marga daga í röð og sífellt fleiri dæmi eru um að barnungar dætur séu seldar í hjónaband.
Konur geta ekki lagt mikið af mörkum, talibanastjórnin hefur svo gott sem gert þær ósýnilegar í samfélaginu. Hlutfall kvenna sem hvorki er í námi né á vinnumarkaði er komið upp í 87 prósent.
Vísbendingar um aukinn barnadauða
Sameinuðu þjóðirnar segja að milljónir barna þurfi meðferð við vannæringu á þessu ári. Formlegar skráningar dauðsfalla finnast ekki á þessu svæði en vísbendingar eru um að barnadauði hafi aukist mikið síðustu ár og þá aðallega vegna vannæringar.
„Í fyrstu fannst mér afar erfitt að sjá börn deyja, en núna er þetta næstum því orðið venjulegt ástand,“ segir Fatima Husseini hjúkrunarfræðingur.
Husseini segir að það komi dagar þar sem fleiri en eitt barn látist. Þá eru dæmi um að foreldrar neyðist til að útskrifa börn áður en þeim er batnað, því þeir geta ekki greitt sjúkrakostnaðinn.
Í sumar verða fimm ár frá því að talibanar tóku völdin, síðan þá hefur neyðaraðstoð verið skorin mikið niður.