Nokkuð hefur borið á afbókunum á gistingu á Vestfjörðum dagana í kringum sólmyrkvann, tólfta ágúst. Einn hóteleigandi varð þó verst úti. Tæplega 90 herbergi losnuðu á einu augabragði.
Þannig að það er bara búið að vera lokað fyrir bókanir hjá okkur þetta eina, eina og hálfa ár. Þangað til núna, þeir afbóka bara allt,“ segir Birna Atladóttir.
Eitt og hálft ár er síðan Birna, staðarhaldari á Hótel Breiðavík á Vestfjörðum, fór að taka við bókunum í kringum sólmyrkvann. Bókað var fyrir þrjá stóra hópa og allt varð uppbókað á skömmum tíma. En þegar Birna fór að rukka um staðfestingargjald afbókuðu allir þrír hóparnir. Þar með losnuðu um 85-90 pláss á einu augabragði. Einn hópur hélt þó eftir nokkrum herbergjum.
„Það er það eina sem ég er búin að hafa í nokkra daga, annars eru nokkur herbergi komin, annars er ég með svona 70 laus rúm.“
Þetta er ekki það eina sem hefur sett strik í reikninginn hjá Birnu. Fyrr á árinu brutust tölvuþrjótar inn í bókunarkerfið og svindluðu þar á gestum sem hugðust bóka gistingu á Breiðavík. Hún hafi rétt verið að jafna sig á áfallinu þegar afbókanirnar komu upp.
„Maður er bara kjaftstopp fyrir þessu en við erum ekki að ergja okkur á þessu, það verður bara að koma í ljós hvernig þetta fer,“ segir Birna.