Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur hjá Arion banka, segir verðbólguspá fyrir maímánuð hafa lækkað vegna þess að virðisaukaskattur á eldsneyti úr dælu verður lækkaður á morgun.
Samkvæmt útreikningum Arion banka hafi lækkunin neikvæð áhrif á vísitölu neysluverðs um 0,25 prósent. „Til að setja það á mannamál þá erum við að spá núna að verðbólgan í maí verði 5 prósent, ef ekki hefði komið til þessara aðgerða þá værum við að spá 5,3 prósenta verðbólgu í maí. Þannig að það munar klárlega um þetta,“ segir Erna.
Hún segir áhrif lækkunarinnar fyrst og fremst koma fram í gegnum verð á eldsneyti á dælu en að afleiddu áhrifin gætu verið meiri inn í hagkerfið, til dæmis í gegnum ferðaþjónustuna. „Þannig að afleiddu áhrifin geta verið til staðar en svona beinu áhrifin inn í verðbólguna, það er fyrst og fremst eldsneytisverð,“ segir Erna.
Mun líklega standa tæpt í haust
Hún segir lækkun eldsneytisverðs klárlega geta aukið líkurnar á að ekki þurfi að endurskoða kjarasamninga í haust
„Þó að þessi aðgerð sé kynnt undir því markmiði að reyna að draga úr kostnaðarhækkunum sem heimilin standa frammi fyrir núna, þá er tímasetningin engin tilviljun,“ útskýrir hún. Aðgerðin er tímabundin, tekur gildi á morgun, 1. maí, og rennur út í lok ágúst.
„Forsenduákvæðið er auðvitað þannig að ef verðbólga er yfir 4,7 prósentum eins og hún var mæld í ágúst, þá er hægt að segja upp kjarasamningum á almennum markaði. Það mun líklega standa tæpt og spár gera ráð fyrir því að þetta geti fallið beggja vegna en þetta svo sannarlega eykur líkurnar allavega á að þetta forsenduákvæði virkist ekki.“