Sævar Skaptason, stjórnarformaður Ferðaþjónustu bænda, segir skýr merki um samdrátt í íslenskri ferðaþjónustu.
„Ástand heimsmála hefur náttúrlega áhrif. Við erum að sjá að það er meira hik á fólki, meðal annars í Bandaríkjunum. Fólk er að bíða og sjá hvernig málin þróast. Óáreiðanleiki í flugáætlun, meðal annars hjá Icelandair, hefur líka sitt að segja. Þannig að það er alveg greinilegur samdráttur á milli ára.“
Of snemmt að ræða veturinn
Hvað með haustið og veturinn?
„Svona er útlitið eins langt og við sjáum. Það er hins vegar of snemmt að fara að tala um veturinn. Vetrarferðir seljast enda yfirleitt með styttri fyrirvara.“
Eru einhverjar vísbendingar um að þetta sé tímabundið ástand og að greinin verði fljót að jafna sig?
„Það eru tvær lykilbreytur í þessu. Annars vegar auðvitað ástand heimsmála og hins vegar að við erum orðin ansi dýr áfangastaður. Ég ætla ekki að vera með einhverjar dómsdagsspár langt fram í tímann en það er ljóst að það er samdráttur í sumar. Ástandið á mörgum mörkuðum er mjög ótryggt. Ferðamenn virðast líka vera að taka ákvörðun með styttri fyrirvara. Þeir eru að bíða og sjá hvernig ástandið verður og kannski detta bókanir inn þegar á reynir.“
Ágætar horfur
Friðrik Pálsson, hótelhaldari á Hótel Rangá, tekur ekki í sama streng.
„Sumarið og haustið líta ágætlega út hjá okkur. Stór hluti viðskiptavina okkar kemur frá Bandaríkjunum. Við höfum fjárfest mikið í markaðssetningu á undanförnum árum og virðumst hafa sterka stöðu þar. Það telja margir að það sé meiri samdráttur í vændum í komum ferðamanna frá Bandaríkjunum en við höfum ekki orðið vör við það. Hins vegar berast fréttir frá Bandaríkjunum um að millistéttin sé varkár þessa dagana og telji ýmislegt í heimsviðburðum þess eðlis að ástæða sé til þess að sýna varkárni í fjármálum og þar með ferðalögum. Það hefur, að því er virðist, ekki snert okkur ennþá,“ segir Friðrik.
Samverkandi þættir
Sérfræðingur í íslenskri ferðaþjónustu, sem vildi ekki koma fram undir nafni, segir nokkra þætti skýra lakari horfur í íslenskri ferðaþjónustu. Í fyrsta lagi hafi spenna í heimsmálum sitt að segja en verð flugmiða hafi hækkað eftir að Íransstríðið hófst. Í öðru lagi sé samkeppnin á ferðamarkaði heimsins meiri en nokkru sinni en það hafi mikið að segja þegar eftirspurnin gefur eftir. Í þriðja lagi, og þessu tengt, sé Ísland ekki nógu sýnilegt á markaðnum sem áfangastaður fyrir ferðalög. Í fjórða lagi sé gengi krónu hátt og fyrir vikið sé Ísland orðið dýrara heim að sækja.
Vegna þessara samverkandi þátta hafi erlendum ferðamönnum fækkað fyrstu fimm mánuði ársins. Sagan sé því að endurtaka sig frá því í fyrra þegar ferðamönnum fækkaði fyrstu fimm mánuði ársins, sumarið var gott og svo aftur fækkun síðustu fjóra mánuði ársins.
Þaulreyndur ferðaskipuleggjandi tók undir þessa greiningu en nefndi einnig auknar álögur á skemmtiferðaskip og kílómetragjald. Skattstefna stjórnvalda væri letjandi. Þá hefðu önnur Norðurlönd kynnt sig betur.
Fækkun í Keflavík
Farþegar á Keflavíkurflugvelli voru ríflega 170 þús. færri fyrstu fjóra mánuði þessa árs en sömu mánuði í fyrra
Ein skýringin er að flugfélagið Play hætti starfsemi í lok september í fyrra en með því dró úr flugframboði til landsins
Síðan hefur Íransstríðið aukið óvissu í ferðaþjónustu um heim allan
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.