Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar.Lögregla brást einnig við útkalli þegar leigubílstjóri lenti í vandræðum með farþega sem neitaði að greiða fyrir farið. Viðkomandi sýndi ógnandi hegðun í garð bílstjórans og reyndi að hlaupa undan lögreglu þegar á vettvang var komið.Maðurinn var eltur uppi, handtekinn og vistaður í fangageymslu sökum ástands.Tilkynnt var um tvö umferðarslys en í öðru skemmdust tvær bifreiðar og í hinu lentu reiðhjól og vespa saman. Í báðum tilvikum urðu minniháttar meiðsl á fólki.Tveir voru handteknir í umferðinni grunaðir um akstur undir áhrifum og einn sektaður fyrir að aka án ökuréttinda.
„Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur - Vísir