Dýraverndarsamband Íslands segir það alvarlegt dýravelferðarmál að minkum hafi verið sleppt frá Dalsbúi í Mosfellsdal á miðvikudag. Sá mikli fjöldi sem þar var sleppti geti valdið verulegum skaða á lífríkinu í grennd búsins, ekki síst fuglalífi. Í yfirlýsingu frá sambandinu áréttar það að ef aðgerðir á búinu hafi verið gerðar í nafni dýravelferðar þá skaði slíkt málstað dýra. Sambandið styðji ekki slíka nálgun.
„Þessi verknaður varðar einnig velferð minkanna sjálfra þar sem dýr sem hafa verið alin innandyra geta reynst bjargarlaus í náttúrunni.“
Sambandið tekur undir hvatningu MAST og hvetur dýraeigendur til að gæta öryggis dýra sem stafað gæti hætta af minknum.
„Jafnframt er fólk hvatt til að fara ekki á svæðið í þeim tilgangi að taka þátt í leit eða föngun minkanna. Sú vinna er alfarið á ábyrgð og á vegum fagaðila sveitarfélagsins.“
„Ekki ólíklegt“ að málið tengist öðrum innbrotum
Lögreglan rannsakar málið sem innbrot og ekki hefur verið staðfest hver stóð að baki verknaðinum né í hvaða tilgangi hann var framinn. Í samtali við fréttastofu í gær sagði Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, það „ekki ólíklegt“ að innbrotið á Dalsbú og tvö önnur bú fyrr á árinu tengist með einhverjum hætti.
Enginn hefur verið kallaður í skýrslutöku vegna innbrota í tvö alidýrabú fyrr á árinu; annars vegar í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi 12. maí og hins vegar alifuglabú Reykjabús í Mosfellsdal 2. júní.