Ljóst er að margir verða á ferðalagi um landið næstu daga og mikilvægt að hafa öryggi í huga. Spenna beltin, leggja frá sér símann, sýna þolinmæði og fylgjast með veðurspá.
Ef áfengi er haft um hönd er næg hvíld nauðsynleg - og ekki leggja of snemma af stað.
Hvort sem fólk stefnir í átt að sól eða rigningu er mikilvægt að búa sig vel.
Hátíðirnar verða víða um land. Í Vestmannaeyjum er líf að færast í Herjólfsdal, brennan á Fjósakletti er að taka á sig mynd og hvítu tjöldin að rísa.
Á Akureyri er allt að verða tilbúið fyrir helgina og búist við fjölmenni.