Jón Þór Karlsson lögreglufulltrúi segir búið að leysa úr vandanum á Suðurlandsvegi þar sem bíll með hjólhýsi í eftirdragi lenti utan vegar. Umferð inn í Reykjavík gangi vel.
„Staðan er ágæt. Þetta mjakast allt saman og engar tilkynningar fyrir utan þessa tilkynningu sem kom áðan varðandi þennan bíl sem lenti þversum á Suðurlandsvegi skammt frá Litlu Kaffistofunni með hjólhýsi sem fór á hliðina. Það myndaðist smá umferðaröngþveiti í kringum það en það er búið að greiða úr því og umferð gengur vel núna,“ segir Jón Þór.
Fólk hafi hagað sér með sóma í umferðinni í dag.
„Það hafa engar tilkynningar borist til lögreglu varðandi einhvers konar glæfralegt aksturslag eða háskalegan framúrakstur. Þannig að það virðist bara vera mikill sómi af hegðun ökumanna eins og staðan er núna.“
Holtavörðuheiði lokað um stund
Miklar umferðartafir urðu á Hellisheiði og á Holtavörðuheiði þegar bílar með hjólhýsi í eftirdragi sem tóku á sig vind lentu utan vegar á leið til höfuðborgarsvæðisins.
Holtavörðuheiði var lokað um tíma á meðan bíll með hjólhýsi í eftirdragi þveraði veginn. Hún hefur verið opnuð aftur og vegfarandi segir umferð farna að mjakast áfram í átt að Reykjavík. Á annað hundrað bílar hafi verið í röð á heiðinni.