Bretar hafa ekki upplifað jafnmarga daga þar sem hitinn fer yfir þrjátíu gráður síðan árið 1995.
Það sem af er ári hefur hitastigið á Bretlandseyjum farið yfir þrjátíu gráður í alls 35 daga. Þegar hitinn fór í 30,6 gráður í þorpinu Frittenden í Kent í gær, sunnudag, var því slegið rúmlega þrítugt 34 daga met.
Veðurfræðingar spá nýrri hitabylgju í komandi viku og búist er við allt að 36 gráðum í hluta Austur-Anglíu og á suðaustanverðu Englandi.
Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur gefið út gula viðvörun fyrir stærstan hluta landsins næstu daga þar sem hætta getur verið á hitatengdum heilsufarsvanda. Tvær methitabylgjur hafa gengið yfir Bretlandseyjar í sumar, í maí og júní, sem hafa leitt af sér 2.800 fleiri andlát en á meðalári.
Júlí var þurrasti mánuður á Englandi og í Wales frá því mælingar hófust sem hefur valdið bændum miklum búsifjum.
Varað hefur verið við vöruskorti af þeim sökum. Eldar hafa líka kviknað víða í skraufaþurrum gróðrinum. Hins vegar féll jafngildi hálfsmánaðar úrkomu í norðvestanverðu Skotlandi síðustu tvo sólarhringana að sögn bresku veðurstofunnar.