Verðbólgan í Bandaríkjunum var 3,8 prósent í apríl og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Verðbólgan jókst um hálft prósentustig milli mánaða.
Aukin verðbólga er ekki síst rekin til stríðsins við Íran og áhrifa þess á olíudreifingu frá Persaflóa.
Vísitala orkuverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 17,9 prósent milli ára. Það er mesta hækkun allra undirflokka verðbólgunnar.