Friedrich Merz Þýskalandskanslari kveðst alls ekki vilja hætta samstarfi ríkja beggja vegna Atlantshafs og hann muni reyna að vinna með Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Trump hefur gagnrýnt Merz harðlega vegna afstöðu hans til stríðsins við Írani og ekki síst þeirra orða að þeir hefðu lítillækkað Bandaríkin við samningaborðið. Bandarísk stjórnvöld boðuðu um helgina brotthvarf þúsunda hermanna frá Þýskalandi á næstu mánuðum.
Merz kvaðst í viðtali við ARD-sjónvarpsstöðina enn þá vilja leggja lítið upp úr deilunum við Trump og brotthvarfshótunum Bandaríkjanna. Um það bil 36 þúsund bandarískir hermenn eru í virkri þjónustu í Þýskalandi.