„Mér leið í rang­stöðu gagn­vart sam­fé­laginu“ - Vísir

„Mér leið í rang­stöðu gagn­vart sam­fé­laginu“ - Vísir

„Mér leið í rang­stöðu gagn­vart sam­fé­laginu“ - Vísir

„Við kynntumst fyrir nokkrum árum, þegar ég var að vinna á Landspítalanum. Það eru svona okkar fyrstu kynni en svo hafa leiðir okkar legið saman svona hér og þar,“ segir Þorbjörg.

„Ég lá inni á Landspítala á fíknigeðdeild 2015, þannig að það er alveg dágóður tími síðan,“ bætir Kristín við.

Eftir að hafa unnið á Landspítalanum færði Þorbjörg sig síðar til VOR-teymis Reykjavíkurborgar sem er vettvangs- og ráðgjafarteymi sem aðstoðar heimilislaust fólk í borginni og þar hittust þær aftur.

Klökknar við að sjá hana í dag

„Þá bjó ég í skaðaminnkunarúrræði á vegum borgarinnar,“ segir Kristín en þær munu í dag ræða sögu Kristínar, aðkomu borgaryfirvalda að þjónustu við hana og ábyrgð samfélagsins þegar kemur að heimilislausum á opnu málþingi um heimilisleysi. Fundurinn hefst klukkan níu.

„Sagan hennar Kristínar er alveg mögnuð. Ég er búin að þekkja hana þetta lengi og það ekkert launungarmál að ég hálfklökkna við að sjá hana í dag og hversu fallegt líf hún á, því hún var talsvert veik.“

Kristín tekur undir það.

„Ég er búin að vera þjónustuþegi ég á öllum stigum,“ segir Kristín sem glímdi við mikla fíkn og svo heimilisleysi.

„Ég fer frá því að vera fjölskyldukona, búandi úti á landi og yfir í að vera alkóhólisti og á mjög skömmum tíma er ég komin á götuna í Reykjavík og orðin þjónustuþegi og bjó í Konukoti.“

Þorbjörg segist ekki geta annað en klökknað yfir því að sjá hvernig Kristínu hefur tekist að breyta lífi sínu til hins betra. Vísir/Anton Brink

Miklar framfarir í þjónustu og viðhorfum

Hún segir að á þeim tíma sem hún var í neyslu hafi orðið miklar framfarir í þjónustu sem hún hafi séð og upplifað á eigin skinni.

„Ég er búin að fylgjast með öllum þessum breytingum sem hafa orðið í kerfinu frá því að það var ekkert nema Konukot og kaffistofa Samhjálpar í það að það verða borgarverðir sem er undanfari Frú Ragnheiðar,“ segir Kristín.

Hún hafi síðar fengið búsetu í skaðaminnkunarhúsnæði í JL-húsinu. Þar hafi fyrst verið karlar og konur en síðar hafi það verið þróað áfram og aðeins konur búið þar.

„Fyrstu skrefin voru stigin þarna að þessari skaðaminnkun sem er í dag,“ segir hún.

Kristín veiktist fyrst í kringum 2008/2009 og varð ekki edrú fyrr en í kringum 2022 og lifði því og hrærðist í þessum heimi um langa hríð. 

„Ég var orðin mjög, mjög lasin.“

Hljóp hálfmaraþon í ágúst

Ertu kannski hissa á að vera á lífi?

„Já, og það var ekki í mínum höndum að ég fengi að halda lífi. Ég var með biluð líffæri og farin að láta lífið af því að líkaminn gat ekki meir,“ segir hún og að það sé í raun ótrúlegt að í dag sé hún fullfrísk og hafi sem dæmi hlaupið hálft maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst.

„Þetta er náttúrulega hundrað prósent viðsnúningur frá því hvernig ég var þarna en það hafa verið margar hindranir á leiðinni,“ segir hún og nefnir sem dæmi að hún hafi til að byrja með verið á áfangaheimili í nokkur ár en svo fengið úthlutaða íbúð í hverfi þar sem var hátt hlutfall félagsíbúða, sem hafi ekki endilega hentað henni. Hún hafi því fengið undanþágu frá því að búa á sama stað í þrjú ár, eins og reglur Félagsbústaða gera ráð fyrir, og fengið úthlutað annars staðar.

„Ég fékk undanþágu frá þessari búsetureglu þriggja ára vegna aðstæðna. Fyrir það fyrsta hefði ég náttúrulega aldrei átt að fá úthlutað í þessari blokk. Félagsbústaðir eiga alla blokkina og það er þekktur vandi í blokkinni.“

Á málþinginu í dag á að fjalla um hlutverk samfélagsins gagnvart heimilisleysi ásamt því að fara yfir mikilvægi samstarfs milli mismunandi hagsmunaaðila, eins og hins opinbera, félagasamtaka, atvinnulífsins og einstaklinga.

Skilur fordóma en telur þá byggða á fáfræði

Hvað varðar almennt samfélagslega umræðu um heimilislausa, eins og í tengslum við Kaffistofu Samhjálpar, segist Kristín vel skilja fólk og ótta sem það hefur gagnvart heimilislausum. 

„Sem óvirkur fíkill þá skil ég fólk ótrúlega vel en oft er þetta byggt á fáfræði, þessum fordómum.“

Þorbjörg tekur undir það og segir umræðuna oft fara inn á tilfinningagreind og fólk sé oft ekki tilbúið að skoða hlutina frá öllum hliðum.

„Það er mikil skrímslavæðing í umræðunni sem kannski einmitt kemur til af fordómum.“

Það sé þannig samfélagslegur stuðningur við því úrræði séu til staðar fyrir hópinn en fólk vilji ekki endilega hafa úrræðin samt nálægt heimili sínu.

Vildi aldrei vera í sviðsljósinu

Kristín segir oft mikinn misskilning í umræðu um heimilislaust fólk. Hún hafi sjálf upplifað það þegar hún var í þessari stöðu að hún vildi alls ekki vera í neinu sviðsljósi eða vekja athygli á sér.

„Ég vildi frekar vera meira til baka af því auðvitað vissi ég að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk. Ég var mjög meðvituð. Enda þessi ár sem ég er veik, þá leið mér alltaf í rangstöðu. Mér leið í rangstöðu gagnvart samfélaginu, mér leið í rangstöðu gagnvart öllu og öllum.“

Þorbjörg segir það ábyrgð hvers samfélags að geta mætt öllum hópum af virðingu og mæta þeirra þörfum hverju hverjar sem þarfirnar eru.

„Umræðan um málaflokk heimilislausra hefur verið ofar á baugi síðustu ár og við höfum unnið mjög gott starf, myndi ég segja, síðustu ár, þó svo að það megi enn gera mikið betur. En mér finnst umræðan orðin opnari og kannski að einhverju leyti háværari. Bara þessi tími sem ég hef verið í málaflokknum, þá finnst mér bæði svona samfélagið í heild og líka þeir aðilar sem við vinnum hvað mest með, heilbrigðisþjónusta, lögregla og aðrir svona í opinberum starfsstéttum, mér finnst þau hlusta meira og bera meiri virðingu bæði fyrir okkar starfi og líka okkar notendum,“ segir Þorbjörg.

Forðaðist að leita á bráðamóttökuna

„Ég tek undir þetta,“ segir Kristín og nefnir sem dæmi að þegar staða hennar var sem verst vildi hún ekki leita á bráðamóttökuna en þar sé viðmótið afar breytt í dag.

„Það er komið fram við mann eins og manneskju. Það var þannig að maður leitaði ekki á bráðamóttöku, maður gerði allt til þess að þurfa ekki að gera það, og kom í kjölfarið ennþá verr á sig kominn til þeirra síðar,“ segir Kristín.

Þorbjörg segir mikið gert í þjónustu VOR-teymis þannig að viðmót sé gott fyrir notendur. Hún segir engan dag eins en lagt sé upp með ákveðið dagsplan.

„Það er ekki til neinn týpískur dagur í vinnunni. Við leggjum upp með ákveðið dagsplan sem yfirleitt riðlast nú eitthvað til og stundum þurfum við að bregðast við einhverju sem þolir enga bið. Flestir dagar eru mjög ánægjulegir og góðir og þetta er mjög fjölbreytt vinna, alltaf einhverjar nýjar áskoranir. Þessi vinna hefur kennt mér mjög margt, um margbreytileika þjóðfélaga en líka hversu hamlandi kerfið getur verið fyrir þennan hóp,“ segir Kristín.

Rafræn skilríki hamlandi

Sem dæmi séu flestir í hennar þjónustu ekki með síma og þannig ekki með rafræn skilríki.

„Þau eru oft að týna símum eða fara að lána eða hann fer í pant,“ segir hún og að þetta hafi til dæmis líka áhrif á samgöngumöguleika þeirra því strætókort séu aðeins rafræn núna.

„Það eru mörg svona atriði sem venjulegu fólki finnst mikil aukning á lífsgæðum en fyrir okkar hóp þýðir þetta mjög takmarkandi lífsgæði.“

Hún segir einhvern á vakt í teyminu frá klukkan átta á morgnana til ellefu á kvöldin. Það sé mikið að gera allan daginn en yfirleitt einhverjir álagspunktar og verkefnin ólík eftir því hvaða tíma dags er um að ræða. Í teyminu eru átján stöðugildi.

„Teyminu er skipt í tvennt. Annars vegar er vettvangshluti sem er þá meira að sinna neyðarskýlunum, Konukoti og þeim sem eru raunverulega húsnæðislausir, eru jafnvel þá gista líka í bílum eða tjöldum. Við fáum ábendingar jafnvel frá borgurum um fólk,“ segir Kristín og að hitt teymið sinni svo fólki sem hafi fengið úthlutað húsnæði í til dæmis smáhýsum eða íbúðum víða um borg.

Hún segist aldrei hrædd í vinnunni og að starfsfólk sé í góðu sambandi við flesta notendur.

„Við eigum í mjög góðu sambandi við þau langflest. Þau leita rosalega mikið til okkar og oft erum við kannski einu aðilarnir sem erum í þeirra lífi,“ segir hún og að fyrir marga sé teymið eini fasti punkturinn í þeirra lífi.

Einu sem tjékkuðu alltaf á henni

Kristín segir mikla breytingu hafa orðið við tilkomu VOR-teymisins. Þá hafi orðið einhver fasti punktur í lífi hennar og einhver sem alltaf tjékkaði á henni.

„Þegar fólk fær úthlutað húsnæði þá gerum við þjónustusamning við það og einn liður í þeim samningi er lyklasamningur. Þannig að við fáum afrit af lykli sem við geymum hjá okkur. Það hefur oft líka komið sér vel ef fólk týnir lyklinum eða gleymir,“ útskýrir Þorbjörg.

Kristín segir að í hennar tilfelli hafi þetta bókstaflega verið lífsbjargandi.

„Þau höfðu leyfi til þess að labba inn í mína íbúð, sem þurfti orðið í restina í minni búsetu af því að heilsufarið var þannig að það bjargaði lífi mínu oftar en einu sinni að það var bara labbað inn og hringt strax á sjúkrabíl.“

„Við gerum þetta ef við erum orðin smeyk um að viðkomandi. Ef hann hefur ekki svarað okkur á fyrirfram ákveðnum tíma eða gert eitthvað sem var fyrirfram ákveðið þá höfum við leyfi til þess að gera þetta,“ segir Þorbjörg.

Hafa frá mörgu að segja

Þorbjörg segir að í starfi eins og hennar sé ekki annað hægt en að byrja að þykja vænt um skjólstæðingana.

„Þau snerta hjörtun okkar algjörlega. Upp til hópa er þetta ótrúlega skemmtilegt, gefandi fólk. Mjög margir sem eru til listhneigðir. Þau hafa frá svo mörgu að segja, ekki bara veikindunum sínum og mér finnst það mjög gefandi í vinnunni að geta átt samtöl um hvað er að gerast í þjóðfélaginu, kynnast þeim raunverulega. Að horfa ekki á þau sem veika einstaklinga. Að þau hafi það pláss, hvort sem það er í bílnum hjá okkur eða á heimilinu, að það sé að þeim sé mætt sem einstaklingum sem eru með langanir og tilverurétt.“

Fólk missir kannski sjónar á þessu?

„Já, það er dálítið dópisti, númer á blaði,“ segir Kristín og að fólk upplifi oft að vera stimplað. Hún segist hafa unnið að því að losa sig við þennan stimpil.

„Ég er ekki þjökuð af einhverri skömm í dag, af stimpli, enda er ég búin að vera opin og heiðarleg og er búin að skila skömminni og ber hana ekki lengur. Ég er farin að leyfa mér að taka mér pláss og líður ekki lengur eins og ég sé ein í þessum litla þrönga heimi. Mig langaði ekki áður að taka pláss og upplifði mig litla, litla gagnvart samfélaginu og lifði í þessum þrönga heimi,“ segir hún og að í dag sé það ekki lengur þannig.

Fólk verði að vita að það sé leið út úr fíkninni

„Ég á í dag valkosti og möguleika, en ég átti það aldrei áður,“ segir hún og að ein af ástæðunum fyrir því að hún vilji opna sig um sína sögu sé að hún vilji hjálpa öðrum sem séu mögulega í þeirri stöðu sem hún var í.

„Ég vil að þau viti að það sé leið út og það er það sem ég brenn fyrir í dag. Að koma því út að það sem hjálpaði mér ótrúlega mikið síðustu tvö árin á meðan ég er enn þá lasin er að það eru menn sem eru að vinna inni í þessu úrræði þar sem ég bjó, sem eru frá 12 spora samtökum, settu fram fyrir mig lið fyrir lið fyrir lið, aftur og aftur og aftur og aftur, hvað ég þyrfti að gera. Sem verður til þess að það er leiðin sem ég fer.“

Hún segir mikið vatn hafa runnið til sjávar og þó svo að vegferðin hafi verið erfið, hafi hún alltaf verið þess virði. 

„Hún var ekki erfiðari heldur en það vera í neyslu. Það er harcore vinna. Það er bara að lifa af einn dag í einu, alla daga.“

#gagnvart #leið #mér #rangstöðu #samfélaginu


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942449d/-mer-leid-i-rangstodu-gagnvart-samfelaginu-

📰 Aðrar fréttir

Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 0
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 1
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
Bæklunarskurðlæknirinn Brian I. Neannunu hvetur fólk til að vera meðvitað um áhættur þyngdartapslyfja á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro.Hann ræði...
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
📅 02.10.2026 👁️ 1
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
Hörður Arnarson ákvað í gær að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár í starfi, fór hann beint í frí og ætlar svo að starfa úr októb...
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
Landsréttur hefur svipt hjón forsjá fjögurra barna sinna vegna langvarandi heimilisofbeldis og óforsvaranlegra uppeldisaðstæðna. Fjölskyldan kom til Í...
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
📅 02.10.2026 👁️ 1
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun Fréttin2. október 2026Björn Bjarnason, InnlentLeave a Comment Hörður Arnarson, fv. forstjóri Landsvirkjunar. Bjö...
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við...
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól Fréttin2. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Haustið kemu...
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
📅 02.10.2026 👁️ 0
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
The brigade is among 20 organisations the police have compiled evidence against since 2017.
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
Mótmæli framhaldsskólanemenda í Frakklandi vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis hafa staðið frá 21. september, eða í tæpar t...
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
📅 02.10.2026 👁️ 1
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
Passengers who seriously disrupt flights or behave dangerously could find themselves banned from travelling with multiple airlines under new measures ...
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
📅 02.10.2026 👁️ 1
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
The Green leader tells his autumn conference that a vote for his party can force changes from Andy Burnham.
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar Um­sögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á fé­laga­formi Orku­veit­unn...
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra staðfestir að stjórnvöld séu reiðubúin að takmarka hækkanir krónutölugjalda við 2,5 prósent ef kjarasamningar h...
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
Málið var rætt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á miðvikudag, þar sem kynnt voru hvílustæði, götugögn á borð við blómapotta og bílastæði í miðborgi...
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
📅 02.10.2026 👁️ 1
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir breytingar á aðalskipulagi hafa orðið til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium...
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
Hörður tilkynnti í gær að hann myndi láta af störfum eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur t...
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
📅 02.10.2026 👁️ 1
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
The party will focus on the economy and welfare, as Kemi Badenoch tells her team to prepare for a possible early election.
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
📅 02.10.2026 👁️ 1
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
Run a rental agency in Playa de las Américas or a dive school in Costa Teguise, and your website's uptime matters more than your Instagram following. ...
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
📅 02.10.2026 👁️ 1
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir sá heldur betur eftir því þegar hún opnaði dós af útrunnum Nocco drykk.„Búin að geyma...
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
📅 02.10.2026 👁️ 1
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
Texas reporter Michael Graczyk has seen botched executions in his time, but not one in which an inmate survived.
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
📅 02.10.2026 👁️ 1
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
Parton's niece Jada Star and Welsh singer Bronwen Lewis say the country artist was proud to sing in Welsh.
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að eigið fé tekjuhæstu tíundar þjóðarinnar hafi vaxið um 92 prósent eða 2....
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
📅 02.10.2026 👁️ 1
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
A magnitude 3.2 earthquake was recorded off the coast of Fuerteventura early this morning (Friday) and was strong enough to be felt by people on the i...
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í október, tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum.  Sjónvarpsauglýs...
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma Fréttin2. október 2026Erlent, TónlistLeave a Comment Kanye West. Bandaríski rapparinn o...
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
📅 02.10.2026 👁️ 1
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín Fréttin2. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pú...
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld verði að halda aftur af hækkunum kílómetragjal...
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
181 var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir margt benda til að...
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
Michael Goessling hafði alla tíð vitað að hann væri ættleiddur og vissi lítið um líffræðilegan uppruna sinn. Það breyttist heldur betur þegar DNA-próf...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
📅 02.10.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) birti nýsköpunarvísitölu ársins 29. september. Ísland er í 26. sæti, niður úr 24. í fyrra, og neðst Norðurlandanna: Sv...
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
Þetta kemur fram í umfjöllun Variety sem hefur þetta eftir leikaranum. Cumming fer með hlutverk X-mannsins Nightcrawler í myndinni. Hann fór síðast me...
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
Á síðasta ári var greint frá nýju efni á vímuefnamarkaði hér á landi, efni sem kallað er 4-CMC, sem virðist nú vera búið að ná fótfestu.  Adam Erik Ba...
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
Kortavefurinn map.is hefur verið uppfærður. Hraðinn er orðinn meiri, útlitið er frísklegra og Íslandskortið er nú sérstaklega sett upp fyrir síma. All...
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
Hyundai á Íslandi lækkaði á fimmtudag verð á sex bílgerðum umboðsins og nemur lækkunin um á bilinu 3,8 - 5,7 prósenta. Verðlækkunin er mismikil eftir ...
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar Fréttin2. október 2026Eurovision, Innlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment Diljá Ámundadóttir varaþingmaður Vi...
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
Í æfingaviðmiðum Fimleikasambands Íslands er mælt með því að 12 ára börn æfi áhaldafimleika í allt að 3,5 tíma í senn 5-6 sinnum í viku.Börn allt niðu...
French school protests send shivers down the government's spine
📅 02.10.2026 👁️ 1
French school protests send shivers down the government's spine
A movement that started nearly two weeks ago has spread, and in France young people on the streets spells trouble, writes Hugh Schofield.
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
📅 02.10.2026 👁️ 1
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
Stray Kids become the second major act to withdraw from the Grammys over the new best Asian Pop award.
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
„Það er dálítið sérstök stemning hérna í París og Frakklandi,“ segir Ásdís í samtali við fréttastofu. Nemendur í yfir þúsund menntaskólum í Frakklandi...