Þá segjum við frá spálíkani sem lektor vinnur að því að þróa sem skima á fyrir vannæringu hjá fólki en hann segir of marga liggja vannnærða á sjúkrastofnunum landsins sem falli í raun á milli skips og bryggju.
Átak reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn en það snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni.
Þá verður farið um víðan völl í íþróttunum enda risastór dagur framundan þar. Tveir risaslagir í Bestu deildinni, áframhaldani fjör í Bónus-deild kvenna og þá hefst úrslitaeinvígi Vals og ÍBV í Olís-deild kvenna í handbolta í dag en Eyjamenn eru í marksmannsvandræðum fyrir leikinn.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.