Starfsfólk sem starfað hefur við gerð sjónvarpsþáttaseríunnar Signals, sem að stærstum hluta er framleidd af Saga Film, fékk ekki greidd laun á settum tíma og sumir bíða eftir því að fyrirtækið geri upp við það.
Skarphéðinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri Saga Film, segir að það helgist af því að endurgreiðslunefnd hafi ekki afgreitt umsókn fyrirtækisins.
Unnt er að fá endurgreitt 25% af framleiðslukostnaði vegna framleiðslu kvikmynda- eða sjónvarpsefnis á Íslandi.
Dagaspursmál
Skarphéðinn segir að dráttur hafi orðið á greiðslum í 3–4 vikur vegna þess að sjóðsstreymisáætlanir hafi ekki gengið eftir.
„Aðallega er það vegna þess hversu hægt það hefur gengið að fá endurgreiðslur frá endurgreiðslunefnd. Það hefur áhrif á okkar sjóðsstreymisáætlanir. En þetta er dagaspursmál og við erum hægt og bítandi að komast yfir það að greiða reikninga sem standa út af borðinu,“ segir Skarphéðinn.
Að sögn hans væntir fyrirtækið tuga milljóna króna frá endurgreiðslunefnd vegna ólíkra verkefna.
Hann segir fólki hafi verið tilkynnt um að greiðslum myndi seink og að „fáir“ eigi eftir að fá greitt.
„Við gerðum ráð fyrir því að milliuppgjör á þessu verkefni myndi liggja fyrir fyrr. Því miður höfum við því þurft að draga greiðslur. En við sjáum fyrir horn og vonumst til þess að stutt sé í að við getum klárað að greiða öllum,“ segir Skarphéðinn.
Glæpasería í átta þáttum
Signals er glæpasería í átta þáttum. Tökum er lokið og stendur eftirvinnsla yfir. Að sögn Skarphéðins er gert ráð fyrir því að þátturinn geti farið í sýningar eftir áramót.
Óskar Jónasson er leikstjóri þáttanna.
Árétting: Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu hafa greiðslur einnig riðlast vegna annarra verkefna hjá fyrirtækinu.
