Máttu ekki að vera á Íslandi en voru báðir handteknir hérlendis

Tveir erlendir ríkisborgarar hafa verið ákærðir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn lögum um útlendinga eftir að þeir komu til Íslands þrátt fyrir að vera í endurkomubanni á Schengen-svæðið. Annar mannanna er jafnframt ákærður fyrir þjófnað.
Mennirnir eru ríkisborgarar Georgíu og Albaníu.
Georgíski maðurinn er ákærður fyrir að hafa komið til Íslands á óþekktum tíma eftir 3. desember 2022 þrátt fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann til Schengen-svæðisins sem gilti til 3. desember 2024. Hann er sagður hafa dvalið hér á landi án tilskilinna heimilda þar til lögregla handtók hann í Hagkaupum í Spönginni 1. febrúar 2024.
Hann er einnig ákærður fyrir að hafa sama dag stolið vörum úr versluninni að verðmæti 4.049 krónur.
Albanski maðurinn er ákærður fyrir að hafa komið til Íslands 21. janúar 2024 þrátt fyrir íslenskt endurkomubann og annað endurkomubann sem grísk yfirvöld höfðu lagt á hann og gilti til september 2028.
Samkvæmt ákæru dvaldi hann ólöglega hér á landi þar til lögregla handtók hann utandyra í Reykjavík 2. febrúar 2024.
Þess er krafist í báðum málum að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.