Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu - Vísir

Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu - Vísir

Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu - Vísir

Leikstjóri myndarinnar er Zach Cregger sem skrifar jafnframt handritið með Shay Hatten. Cregger er rísandi stjarna í Hollywood og hefur áður gert hrollvekjurnar Weapons (2025) og Barbarian (2022).

Resident Evil er áttunda leikna kvikmyndin upp úr samnefndri tölvuleikjaseríu og önnur tilraunin til að endurræsa hana á stóra skjánum. Ólíkt fyrri kvikmyndum seríunnar er leikhópur Resident Evil tiltölulega fámennur og raunar er myndin borin uppi af aðalleikaranum Austin Abrams sem er nær allan tímann í mynd. Abrams vann með Cregger í Weapons og vakti þar áður athygli fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Euphoria.

Kvikmyndin segir frá sendlinum Bryan (Abrams) sem þarf að fara með mikilvægan pakka á sjúkrahús í Þvottabjarnarborg þegar uppvakningavírus ríður yfir borgina. Hann þarf því ekki aðeins að koma sendingunni á leiðarenda heldur líka að halda sér á lífi andspænis uppvakningum og öðrum skrímslum.

Resident Evil var frumsýnd hérlendis 18. september og er sýnd í Sambíóunum, Smárabíói og Laugarásbíói.

Ógrynni af ömurlegum tölvuleikjamyndum

Við fyrstu sýn mætti halda að tölvuleikir væru auðveldlega aðlagaðir að stóra skjánum. Mesta erfiðisvinnan er afstaðin því það er búið að finna upp á hugmyndinni, skapa fullmótaðan heim og oftar en ekki grípandi persónur. Stærstan hluta síðustu þrjátíu ára hafa tölvuleikjaaðlaganir þó gengið bagalega.

Aðalástæðan er hve snúið er að taka dýnamíska upplifun þar sem spilarinn er virkur þátttakandi í leiknum og yfirfæra hana á skjáinn þar sem viðkomandi er bara áhorfandi. Þá er alls konar virkni í tölvuleikjum sem virkar ekki í kvikmyndum vegna endurtekningarsemi eða fáránleika. Það er gaman að láta Maríó hoppa en ekki eins gaman að horfa á hann gera það. Einfaldasta skýringin er svo að flestallar tölvuleikjamyndir síðustu þrjá áratugina eru illa skrifaðar og hraðsoðnar.

Leguizamo og Hoskins sem Luigi og Mario.

Fyrsta almennilega tilraunin til að aðlaga tölvuleik að skjánum var Super Mario Bros. (1993) með Bob Hoskins og John Leguizamo í aðalhlutverkum. Fáar tölvuleikjapersónur hafa notið jafnmikillar hylli í gegnum tíðina og píparinn Maríó en kvikmyndin varð hins vegar algjört flopp. Þremur áratugum síðar tókst þó að koma Maríó almennilega á stóra skjáinn í teiknimyndaformi.

Ári eftir flopp Maríó-bræðra komu út Double Dragon og Street Fighter, sem byggðu á samnefndnum bardagaleikjum, og fengu hörmulega dóma. Fyrsta tölvuleikjakvikmyndin sem sló almennilega í gegn hjá áhorfendum (og fékk bærilega dóma hjá gagnrýnendum) var bardagamyndin Mortal Kombat (1995) eftir enska leikstjórann Paul W. S. Anderson. Myndin sýndi að það væri sannarlega markaður fyrir aðlaganir á tölvuleikjum.

Upp úr aldamótum kom út fjöldi kvikmynda sem byggði á vinsælum tölvuleikjaseríum.

Upp úr aldamótum kom út ógrynni tölvuleikjakvikmynda sem fengu allflestar slæma dóma og nutu misjafnra vinsælda hjá áhorfendum, svo sem Lara Croft: Tomb Raider (2003), Doom (2005) og Silent Hill (2006). Fremstur meðal jafningja við gerð hörmulegra tölvuleikjamynda er þýski leikstjórinn Uwe Boll. 

Boll hefur gert ellefu aðlaganir á tölvuleikjum, þar á meðal House of the Dead (2003), Postal (2007) og Far Cry (2008), og er óhætt að segja að þar sé algjört drasl á ferðinni. Kvikmyndir Boll innihalda jafnan öll verstu einkenni tölvuleikjamynda: illa skrifuð handrit, stífan leik, hryllilegar tæknibrellur og yfirgengilegt ofbeldi.

Uwe Boll og Paul W.S. Anderson hafa báðir einbeitt sér að því að aðlaga tölvuleiki að kvikmyndaforminu.20th Century Fox/Universal

Annar maður sem hefur tileinkað feril sinn tölvuleikjamyndum og mótað greinina er fyrrnefndur Paul W. S. Anderson. Eftir að hafa slegið í gegn með Mortal Kombat og geimhrollvekjunni Event Horizon (1997) þá leikstýrði hann hrollvekjuhasarnum Resident Evil (2002) þar sem Milla Jovovich, tilvonandi eiginkona hans, fór með aðalhlutverkið. 

Resident Evil var fyrsta myndin af sex sem hjónin gerðu saman í seríunni og komu út á árunum 2002 til 2016. Þær einkenndust af miklum byssuhasar, yfirdrifnum tæknibrellum og framvindu sem varð bjánalegri með hverju framhaldinu. Á endanum var ákveðið að endurræsa seríuna með kvikmyndinni Welcome to Raccoon City (2021) en sú var einhvern veginn enn verri en það sem hafði komið á undan.

Milla Jovovich hefur leikið í sjö tölvuleikjamyndum í leikstjórn eiginmanns síns.

Þótt Uwe Boll sé alræmdur er hann áhrifalítill, gerði ódýrar og lélegar kvikmyndaaðlaganir á tölvuleikjum sem fáir sáu. Óhætt er að segja að Anderson beri miklu meiri ábyrgð á því að tölvuleikjamyndir hafa verið brennimerktar sem algjört drasl síðustu ár. 

Orðspor tölvuleikjamynda hefur að vísu braggast á síðustu árum með tilkomu vandaðri aðlaganna. Þar má nefni kvikmyndaþríleikinn um bláa broddgöltinn Sonic, hina geysivinsælu The Minecraft Movie (2024) og sjónvarpsþáttaraðirnar The Last of Us (2023-) og Fallout (2024-). Nýjasta kvikmyndin sem bætist í þennan hóp er Resident Evil.

Ógnvekjandi ólétta, vönkuð kona og veirusýking

Zach Cregger skapaði sér fyrst nafn í grínhópnum Whitest Kids U'Know þar sem hann gerði sketsa og leikstýrði afspyrnulélegu kynlífskómedíunni Miss March (2009). Fyrsta myndin sem Cregger leikstýrði sjálfstætt var Barbarian en þar var á ferðinni óhugnanleg og sprenghlægileg hrollvekja um konu sem uppgötvar að íbúðin sem hún hefur leigt er tvíbókuð, annar maður er í sömu sporum og eitthvað undarlegt á seyði.

Barbarian fékk góðar viðtökur og fylgdi Cregger henni eftir með yfirnáttúrulegu hrollvekjunni Weapons sem fjallar um hóp skólabarna sem hverfa sporlaust. Myndin vakti gríðarlega athygli, naut mikilla vinsælda og hlaut Amy Madigan Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni.

Austin Abrams hlaut mikið lof fyrir leik sinn í Weapons.

Báðar myndirnar einkenndust af skemmtilegri blöndu hryllings og húmors, bjuggu yfir óhefðbundinni frásögn og frumlegri nálgun á umfjöllunarefni sín. Það var því áhugavert að heyra að Cregger myndi næst tækla japönsku skotleikjaseríuna Resident Evil, ekki síst vegna þess að serían hefur aldrei virkað sérlega vel á stóra skjánum.

Bryan er klaufskur og lítt veraldarvanur sendill sem vinnur við að skutlast með lyf og líffæri fyrir sjúkrahús. Hann á von á barni með kærustu sinni en er ekki tilbúinn fyrir barneignir og vill að hún fari í fóstureyðingu. Þótt ákvörðunin sé á endanum hennar vill hann ræða málið betur í persónu. Þegar vaktinni lýkur býðst Bryan annað verkefni: að sendast með mikilvægan pakka á sjúkrahús í Þvottabjarnarborg. 

Frekar en að fara heim til að ræða við ólétta kærustuna ákveður hann að taka verkefnið að sér. Óttinn við breytingar og flótti undan því að takast á við hlutina hefur dæmt Bryan til að þola erfiðustu nótt ævi sinnar. Barneignir eru yfirþyrmandi tilhugsun en Bryan á eftir að komast að því að það er ýmislegt hræðilegra en ungabarn.

Bryan fær aðstoð lögregluþjóns.

Sagan rúllar af stað eftir hálum, snæviþöktum vegi og Bryan er auðvitað bæði illa búinn og á lélegum dekkjum. Hann fylgist ekki nægilega vel með og ekur á konu sem gengur út á veginn. Konan er blóðug eftir áreksturinn en þó enn lifandi þannig að Bryan ákveður að koma henni á sjúkrahús. 

Það er augljóslega eitthvað miklu verra að plaga konuna en áverkar eftir áreksturinn. Bryan er hins vegar algjörlega grunlaus sem skapar í senn mjög fyndnar aðstæður og byggir upp töluverða spennu. Án þess að spilla of miklu þá lenda þau tvö í frekari hremmingum og áður en langt um líður er Bryan strandaður úti í sveit, hundeltur af veirusýktri veru og þarf að bjarga sér með það sem hann getur. Við tekur hryllileg nótt þar sem stökkbreytt mannfólk, blóðug skrímsli, illviðráðanlegir lásar og slímugir griparmar koma við sögu.

Kjarnar tilfinningu tölvuspilsins

Aðdáendur tölvuleikjaseríunnar hafa legið á hálsi Cregger fyrir að vera ekki nógu trúr leikjunum. Hann notar fyrst og fremst grunnhugmynd leiksins um vírus sem stökkbreytir fólki í afmynduð skrímsli og sleppir ýmsu öðru. Frekar en að fylgja eftir teymi vopnaðra hetja, líkt og í leikjunum, þá fylgja áhorfendur eftir óbreyttum borgara sem þarf að spjara sig.

Þannig má segja að myndin kjarni upplifunina af því að spila tölvuleik frekar en endilega tölvuleikinn sjálfan. Bryan kann ekki á byssur, veit ekki hvað hann er að gera og gerir reglulega mistök, rétt eins og hann væri nýgræðingur að spila tölvuleik. Uppbygging myndarinnar ber einnig þess merki þar sem hetjan fær stöðugt nýtt og nýtt verkefni sem verða sífellt strembnari, líkt og hann væri að fara á milli ólíkra borða í leiknum.

Ýmis önnur atriði eru fengin að láni úr tölvuleikjaspili, svo sem skothylkjaleit, stigabrölt og lásar sem verða Bryan fjötur um fót. Skortur á byssukúlum og dauðaleit að þeim er lykilhluti af því að spila tölvuleiki á borð við Resident Evil. Útfærslan verður samt ekki ódýr eða ótrúverðug og passar bæði karakternum og heimi kvikmyndarinnar.

Vasaljós eru mikilvæg í uppvakningaleikjum.

Áhorfendur eru ekki mataðir með upplýsingum heldur skýrist staða mála betur eftir því sem Bryan staulast áfram milli staða. Lýsing (og myrkur), klipping og myndataka Dariusz Wolski gefa myndinni skýran og þrúgandi stíl. Hryllingurinn er byggður upp með því að setja Bryan í óþægilegar aðstæður sem versna bara og versna frekar en að reynt sé að bregða áhorfendum. 

Grín er notað óspart til að létta á spennunni eða undirstrika hryllinginn. Cregger er líka illkvittinn höfundur og nýtur þess að láta Bryan þjást gegnum grimmar raunir þar sem honum er refsað hvort sem hann breytir rétt eða rangt. Ótti Bryans við barneignir tekur á sig áþreifanlega mynd í nokkrum frábærum senum, þar má nefna óttaslegna stúlku, þrútinn maga fullan af ógeðslegum afkvæmum og fæðingardeild fulla af veirusýktum fóstrum. 

Abrams hvarf algjörlega inn í hlutverk sitt í Weapons sem heimilislaus maður langt leiddur í fíknivanda. Hér er hann í allt öðrum gír, leikur Bryan sem hlægilegan en viðkunnanlegan hversdagskjána. Samt er hann líka mjög líkamlegur í hlutverkinu, blótar í sífellu, öskrar af ótta, hleypur um, hrasar, dettur og grætur jafnvel.

Stundum dugar moppa til að halda óðum skrímslum í skefjum.

Eftir taugatrekkjandi fyrri helming þar sem Bryan hefur verið meira og minna einn með skrímslunum þá verður loksins eðlilegt fólk á vegi hans. Cregger fatast þar flugið í fyrsta skiptið, grínið sem hefur nýst vel sem mótvægi við hryllingnum fær of mikið pláss og tekur mann um leið aðeins út úr myndinni. 

Þegar Bryan kemst loks á leiðarenda þarf hann, í takt við gálgahúmor myndarinnar, að komast á efstu hæð 28 hæða turns sem er umkringdur skrímslum. Þar stigmagnast blóðugt ógeðið í algjörri skrímslasúpu, skemmtilegum loftfimleikum og lokahnykk. Endirinn er í samræmi við það sem á undan hefur gengið en er þó dálítið endasleppur og klunnalegur. Hann gengur upp, bæði frásagnarlega og þematískt, en hefði mátt vera efnismeiri og um leið kraftmeiri.

Niðurstaða

Zach Cregger heldur áfram að gera það gott í hryllingnum og skilar hér af sér óhuggulegri, subbulegri og meinfyndinni uppvakningaræmu. Honum tekst að gera það sem fáum hefur tekist, að aðlaga bæði efnivið og form tölvuleiks að stóra skjánum á sannfærandi hátt.

Lengst af myndinni tekst snilldarlega að feta milliveginn milli spennu, óhugnaðar og gríns. Abrams heldur áhorfendum algjörlega með líkamlegum og sjarmerandi leik. Þegar líða tekur á seinni hlutann fær grínið of mikið pláss sem dregur úr slagkraftinum. Cregger flýtir sér síðan um of þegar hann rekur smiðshöggið á verkið sem skilar sér í endasleppum og klaufalegum endi.

Resident Evil er 94 mínútur að lengd, þeysist áfram og er laus við óþarfa fitu. Það er partur af planinu að staldra ekki of lengi við en gerir að verkum að myndin verður dálítið eintóna, skortir dýpt sem hefði getað styrkt söguna. Góð uppvakningamynd en ekki eins eftirminnileg og hún hefði getað orðið.

#martraðarkennd #með #nótt #skæðu #veirunni


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940665d/martradarkennd-nott-med-veirunni-skaedu

📰 Aðrar fréttir

Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 0
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
📅 02.10.2026 👁️ 0
„Þá hafi hópur manna frá sama landi sett sig í samband við hana og beitt hótunum svo hún hætti við skilnað“
Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður segir barnavernd ekki hafa gripið nægilega hratt inn í mál þar sem staðfest sé að börn hafi verið vanrækt og mis...
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 0
Gengst loksins við fjöru­tíu ára gömlu ástar­ævin­týri með Turner - Vísir
Douglas segir frá þessu 42 ára gamla framhjáhaldi í nýrri ævisögu sinni, One Helluva Ride, sem kemur út þann 6. október næstkomandi.  Þegar kvikmyndin...
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
📅 02.10.2026 👁️ 0
Alison Hammond has heart check-up in hospital after leaving TV's This Morning
The host says she is "fine" but getting checked after leaving This Morning midway through Friday's show.
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ung­lingar bundnir og skildir eftir við heimili - Vísir
Í byrjun september var drengur á unglingsaldri bundinn af öðrum ungmennum þannig að hann var ósjálfbjarga og skilinn eftir í kjallara fjölbýlishúss. S...
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja - Vísir
Málflutningur var í aðalmeðferðinni í dag og fer héraðssaksóknari fram á 16 ár. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, settur varahéraðssaksóknari, í...
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þurfa að verja stöðuna frekar en að sækja fram
Móðir ungs manns með downs heilkennið og einhverfugreiningu sagði frá því í Þetta helst að hún hefði áhyggjur af heilsu hans. Eftir að hann flutti að ...
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allir sau­tján frjálsir ferða sinna - Vísir
Enginn sætir gæsluvarðhaldi vegna málsins eins og stendur. Þetta staðfestir E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs lögreglun...
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir ekkert ósætti hafa verið milli sín og Harðar Arnarsonar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, þvertekur fyrir að ósætti hafi verið á milli hans og Harðar Arnarsonar sem lét í gær af störfum...
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fara fram á 16 ára fangelsi yfir Georgios
Héraðssaksóknari krefst hámarksrefsingar, eða 16 ára fangelsis, yfir Georgios Ntentes grískum manni sem er ákærður um að hafa banað portúgölskum manni...
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
📅 02.10.2026 👁️ 1
Skipar sérstakan saksóknara vegna Cornell-málsins
Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, skipaði Letitiu James í embætti sérstaks saksóknara til að rannsaka ásakanir um að konu hefði verið nauðgað af hóp...
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
📅 02.10.2026 👁️ 1
Bæklunarskurðlæknir með mikilvæg skilaboð til fólks á GLP-1 lyfjum
Bæklunarskurðlæknirinn Brian I. Neannunu hvetur fólk til að vera meðvitað um áhættur þyngdartapslyfja á borð við Ozempic, Wegovy og Mounjaro.Hann ræði...
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
📅 02.10.2026 👁️ 1
Varpa fram kenningum um uppsögn Harðar: „Annars eigið þið skilið að sitja uppi með sögusagnir“
Hörður Arnarson ákvað í gær að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir 17 ár í starfi, fór hann beint í frí og ætlar svo að starfa úr októb...
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Vildu forsjá barna sinna til baka og hótuðu að hætta við skilnaðinn ef þau fengju ekki sínu framgengt
Landsréttur hefur svipt hjón forsjá fjögurra barna sinna vegna langvarandi heimilisofbeldis og óforsvaranlegra uppeldisaðstæðna. Fjölskyldan kom til Í...
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
📅 02.10.2026 👁️ 1
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun
Deilt um stjórnarhætti í Landsvirkjun Fréttin2. október 2026Björn Bjarnason, InnlentLeave a Comment Hörður Arnarson, fv. forstjóri Landsvirkjunar. Bjö...
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við erum ó­þolin­móð“ - Vísir
Greint var frá því í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans þann 14. september að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við...
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól
Fjörðurinn sem var friðaður í ræðustól Fréttin2. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Haustið kemu...
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
📅 02.10.2026 👁️ 0
London Fire Brigade named in Met's investigation file on Grenfell
The brigade is among 20 organisations the police have compiled evidence against since 2017.
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Drepið hana!“ – Lögreglukona elt og barin í París á meðan skólar og slökkvibíll eru brenndir
Mótmæli framhaldsskólanemenda í Frakklandi vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja og lélegs skólahúsnæðis hafa staðið frá 21. september, eða í tæpar t...
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
📅 02.10.2026 👁️ 1
Disruptive passengers could be banned from multiple airlines under new UK rules
Passengers who seriously disrupt flights or behave dangerously could find themselves banned from travelling with multiple airlines under new measures ...
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
📅 02.10.2026 👁️ 1
Greens can move Labour in the right direction, says Zack Polanski
The Green leader tells his autumn conference that a vote for his party can force changes from Andy Burnham.
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar
Ætla að breyta félagaformi Orkuveitunnar Um­sögn fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs vegna fyr­ir­hug­aðra breyt­inga á fé­laga­formi Orku­veit­unn...
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Minni gjaldahækkanir kosti ríkis­sjóð 2,5 milljarða - Vísir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra staðfestir að stjórnvöld séu reiðubúin að takmarka hækkanir krónutölugjalda við 2,5 prósent ef kjarasamningar h...
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt - Vísir
Málið var rætt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs á miðvikudag, þar sem kynnt voru hvílustæði, götugögn á borð við blómapotta og bílastæði í miðborgi...
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
📅 02.10.2026 👁️ 1
Breyting á aðalskipulagi ógnar störfum í Reykjanesbæ
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir breytingar á aðalskipulagi hafa orðið til þess að 20 manns var sagt upp hjá fiskvinnslunni Premium...
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Segir á­greininginn í Lands­virkjun ekki snúast um arð­greiðslur - Vísir
Hörður tilkynnti í gær að hann myndi láta af störfum eftir sautján ár sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri tekur t...
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
📅 02.10.2026 👁️ 1
Conservatives aim to be election-ready ahead of party conference
The party will focus on the economy and welfare, as Kemi Badenoch tells her team to prepare for a possible early election.
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
📅 02.10.2026 👁️ 1
Best Web Hosting for UK Small Businesses in the Canaries: A 2026 Comparison
Run a rental agency in Playa de las Américas or a dive school in Costa Teguise, and your website's uptime matters more than your Instagram following. ...
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
📅 02.10.2026 👁️ 1
Magnea Björg sá strax eftir því að hafa opnað drykkinn – Sjáðu myndbandið
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Magnea Björg Jónsdóttir sá heldur betur eftir því þegar hún opnaði dós af útrunnum Nocco drykk.„Búin að geyma...
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
📅 02.10.2026 👁️ 1
I've seen nearly 500 executions - but never one like Christa Pike's
Texas reporter Michael Graczyk has seen botched executions in his time, but not one in which an inmate survived.
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
📅 02.10.2026 👁️ 1
Dolly Parton sings Jolene in Welsh in recording released after her death
Parton's niece Jada Star and Welsh singer Bronwen Lewis say the country artist was proud to sing in Welsh.
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
📅 02.10.2026 👁️ 1
Þórður Snær segir þetta ástæðuna fyrir því að ríka fólkið vilji ríkisstjórnina burt
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að eigið fé tekjuhæstu tíundar þjóðarinnar hafi vaxið um 92 prósent eða 2....
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
📅 02.10.2026 👁️ 1
3.2 earthquake felt across Fuerteventura
A magnitude 3.2 earthquake was recorded off the coast of Fuerteventura early this morning (Friday) and was strong enough to be felt by people on the i...
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Aug­lýsing fyrir Bleiku slaufuna frum­sýnd á Vísi og Sýn - Vísir
Bleika slaufan er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins í október, tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum.  Sjónvarpsauglýs...
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma
Kanye bannað að koma fram í Rússlandi fyrir að vegsama nasisma Fréttin2. október 2026Erlent, TónlistLeave a Comment Kanye West. Bandaríski rapparinn o...
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
📅 02.10.2026 👁️ 1
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín
Modi hefur „mjög góðar hugmyndir“ til að binda enda á átökin í Úkraínu – Pútín Fréttin2. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Vladímír Pú...
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mikilvægt að halda líka aftur af kílómetragjaldinu
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og Verkalýðsfélags Akraness, segir að stjórnvöld verði að halda aftur af hækkunum kílómetragjal...
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Þungur vetur framundan á vinnumarkaði“
181 var sagt upp í sex hópuppsögnum í september, flestum á sviði hugbúnaðar- og upplýsingatækni. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir margt benda til að...
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
📅 02.10.2026 👁️ 1
Fékk ótrúlegar fréttir 58 ára – Heimsfrægur söngvari reyndist faðir hans
Michael Goessling hafði alla tíð vitað að hann væri ættleiddur og vissi lítið um líffræðilegan uppruna sinn. Það breyttist heldur betur þegar DNA-próf...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
📅 02.10.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Frá fyrsta sæti í það tuttugasta og sjötta
Alþjóðahugverkastofnunin (WIPO) birti nýsköpunarvísitölu ársins 29. september. Ísland er í 26. sæti, niður úr 24. í fyrra, og neðst Norðurlandanna: Sv...
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut - Vísir
Þetta kemur fram í umfjöllun Variety sem hefur þetta eftir leikaranum. Cumming fer með hlutverk X-mannsins Nightcrawler í myndinni. Hann fór síðast me...
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Geri málið tor­tryggi­legt að neita að svara - Vísir
Frá því að Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, steig fram og skilaboð milli hans og fyrrverandi aðstoðarkonu hans vo...
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Við höfum séð mikla aukningu á því á Ís­landi“ - Vísir
Á síðasta ári var greint frá nýju efni á vímuefnamarkaði hér á landi, efni sem kallað er 4-CMC, sem virðist nú vera búið að ná fótfestu.  Adam Erik Ba...
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
📅 02.10.2026 👁️ 1
Kortavefurinn með meiri hraða og betra aðgengi í gegnum símtæki
Kortavefurinn map.is hefur verið uppfærður. Hraðinn er orðinn meiri, útlitið er frísklegra og Íslandskortið er nú sérstaklega sett upp fyrir síma. All...
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
📅 02.10.2026 👁️ 1
Allt að 5,7% verðlækkun hjá Hyundai á Íslandi
Hyundai á Íslandi lækkaði á fimmtudag verð á sex bílgerðum umboðsins og nemur lækkunin um á bilinu 3,8 - 5,7 prósenta. Verðlækkunin er mismikil eftir ...
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
📅 02.10.2026 👁️ 1
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar
RÚV-aktívismi og mótun umræðunnar Fréttin2. október 2026Eurovision, Innlent, Páll Vilhjálmsson, RÚVLeave a Comment Diljá Ámundadóttir varaþingmaður Vi...
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
📅 02.10.2026 👁️ 1
„Er meira virkilega betra“ í þjálfun barna?
Í æfingaviðmiðum Fimleikasambands Íslands er mælt með því að 12 ára börn æfi áhaldafimleika í allt að 3,5 tíma í senn 5-6 sinnum í viku.Börn allt niðu...
French school protests send shivers down the government's spine
📅 02.10.2026 👁️ 1
French school protests send shivers down the government's spine
A movement that started nearly two weeks ago has spread, and in France young people on the streets spells trouble, writes Hugh Schofield.
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
📅 02.10.2026 👁️ 1
K-pop giants Stray Kids join BTS in boycotting the 2027 Grammy Awards
Stray Kids become the second major act to withdraw from the Grammys over the new best Asian Pop award.
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Mennta­skóla­nemar mót­mæla: Ís­lensk stúlka varð fyrir tára­gasi - Vísir
„Það er dálítið sérstök stemning hérna í París og Frakklandi,“ segir Ásdís í samtali við fréttastofu. Nemendur í yfir þúsund menntaskólum í Frakklandi...